MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Áróra L Davíðsdóttir skrifar 16. júlí 2026 09:50 Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi, ásamt Anima, Animals’ Angels Inc., Animal Justice, Animal Welfare Foundation, Dier&Recht, Eko, Eurogroup for Animals, Italian Horse Protection og Tierschutzbund Zürich og Welfarm, hafa sent kvörtun til atvinnuvegaráðuneytisins. Vísir/Vilhelm Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. Samtökin segja blóðtöku í blóðmerahald hérlendis fara langt yfir alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna.
Jafnframt sé þess krafist að MAST taki umsóknina til meðferðar á ný í fullu samræmi við kröfur reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni sem er Evróputilskipun og Íslandi ber að fylgja sem aðili að EES samningnum. Samtökin sendu Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra kröfubréf á þriðjudagnn síðastliðinn. Blóðtaka í blóðmerahaldi fari langt umfram alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna. „Einnig er meðferð hryssnanna við blóðtöku, sem eru að jafnaði lítið tamdar, með öllu óviðunandi. Ekki er unnt að taka blóð úr hálfvilltum hrossum án þess að valda þeim verulegri streitu og ótta eða án þess að beita þvingunum,“ segir í yfirlýsingunni. Fagráð um velferð dýra hafi veitt leyfisumsókn fyrir blóðmerahaldi neikvæða umsögn í febrúar á þessu ári. Samtökin segja MAST hafi farið gegn áliti ráðsins og hafi veitt starfseminni skilyrt leyfi í maí til tveggja ára. „Það vekur einnig furðu að leyfi hafi verið veitt á meðan yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) er varðar velferð blóðmera er enn ólokið.“ „Samtökin krefjast þess að ákvörðun MAST um að veita leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum, þvert á umsögn fagráðs um velferð dýra, verði felld úr gildi í heild sinni eða til vara að hún verði endurskoðuð í samræmi við kröfur reglugerðar nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni og laga nr. 55/2013 um velferð dýra.“
Blóðmerahald Matvælastofnun Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira