Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Vinnupallar 24. júní 2026 10:09 Langflestir kjósa að leigja vinnupalla enda taka þeir mikið pláss í geymslu þegar verkefnum lýkur. Fyrirtækið Vinnupallar ehf. bjóða upp á lausnir fyrir öll verkefni. Vinnupallar ehf. bjóða öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir verktaka, iðnaðarmenn og aðra fagaðila sem sinna framkvæmdum af ýmsu tagi. Fyrirtækið sérhæfir sig í leigu og sölu vinnupalla en hefur á undanförnum árum einnig byggt upp öflugt framboð á öryggisgirðingum, umferðaröryggisvörum og fallvörnum ásamt fjölbreyttum fylgibúnaði.
Viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur, allt frá múrurum, málurum og smiðum yfir í jarðvinnuverktaka og fyrirtæki sem vinna við lagnaframkvæmdir og vegagerð. Þar skipta öryggi og skipulag sköpum og því er hægt að fá allt frá vinnusvæðagirðingum og hliðum með læsingum yfir í staura og fætur undir skilti og klemmur. „Við erum mestmegnis í vinnupöllum en höfum sífellt verið að stækka í girðingum og umferðaröryggisvörum,“ segir Starkaður Snorri hjá Vinnupöllum ehf. en það hefur reynst mikilvæg viðbót fyrir marga viðskiptavini sem vilja fá sem mest á einum stað. Fyrirtækið býður bæði sölu og leigu og einnig uppsetningu þegar þess er óskað. Langflestir kjósa að leigja vinnupalla enda taka þeir mikið pláss í geymslu þegar verkefnum lýkur. Aðrir eiga eigin palla en kaupa einstaka aukahluti til að aðlaga búnaðinn að mismunandi verkefnum. Með hundruðum fylgihluta í boði er hægt að finna lausnir fyrir flestar aðstæður. Gott að hafa samband með fyrirvara Þegar framkvæmdir standa sem hæst skiptir miklu máli að réttur búnaður sé til staðar á réttum tíma. Starkaður bendir þó á að eitt algengasta vandamálið sé skortur á fyrirvara. „Við reynum alltaf að þjónusta okkar viðskiptavini sem best en fólk hefur oft samband sama dag og það þarf pallana. Sérstaklega yfir háannatímann er gott að gera ráð fyrir að minnsta kosti þriggja daga fyrirvara,“ Segir hann. Vinnupallar hófu starfsemi árið 2017 og opnuðu verslun sína tveimur árum síðar. Fjölskyldufyrirtækið hefur stækkað jafnt og þétt og leggur ríka áherslu á persónulega ráðgjöf. Ef viðskiptavinir geta sent málsetningar eða myndir af verkefninu er auðveldara að velja rétta lausn og tryggja að framkvæmdin gangi bæði hraðar og öruggar fyrir sig. Með auknu vöruúrvali í girðingum, umferðaröryggisbúnaði og öryggislausnum hafa Vinnupallar styrkt stöðu sína sem þjónustuaðili fyrir íslenska verktaka sem vilja öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir fjölbreytt verkefni.
Byggingariðnaður Mest lesið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Neytendur Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira