Golf

Tiger kom fram opin­ber­lega í fyrsta sinn frá hand­tökunni frægu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods hélt stutta tölu en svaraði engum spurningum.
Tiger Woods hélt stutta tölu en svaraði engum spurningum. Getty/Andrew Redington/

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods kom fyrst fram opinberlega í gær frá því hann var handtekinn í lok mars. Tiger mætti og kynnti forstjórann Brian Rolapp á blaðamannafundi á TPC River Highlands.

Woods flaug til Hartford í Connecticut í vikunni til að sitja stjórnarfund þar sem samþykktar voru verulegar breytingar á framtíðarfyrirkomulagi PGA-mótaraðarinnar. 

Hann sneri aftur til Bandaríkjanna fyrir nokkrum vikum eftir að hafa farið í meðferð í Sviss í kjölfar handtöku fyrir ölvunarakstur á Jupiter Island í Flórída.

Forréttindi að hafa Tiger með

Woods, sem er fimmtugur, var formaður framtíðarkeppnisnefndarinnar, sem vann stóran hluta af undirbúningsvinnunni fyrir þær breytingar sem taka gildi árið 2028, þar á meðal að kylfingar keppi annaðhvort í meistaradeild eða áskorendadeild og endurskipulögðu úrslitakeppni.

„Ég tel að það hafi verið gríðarlegur styrkur og forréttindi að hafa Tiger með,“ sagði Rolapp.

„Innsýn hans í leikinn sem leikmaður, en einnig þar sem hann hefur verið í kringum hann allt sitt líf, er ómetanleg. Forysta hans hefur því verið frábær. Við erum heppin að hafa hann,“ sagði Rolapp

Tók ekki við spurningum

Woods las upp úr undirbúini yfirlýsingu áður en hann kynnti Rolapp og tók ekki við spurningum. Woods fylgdist með stórum hluta blaðamannafundarins standandi í herberginu.

Woods kom aftur á svið í lok blaðamannafundarins þegar Gorder, stjórnarformaður PGA Tour Enterprises og stefnumótunarráðs PGA-mótaraðarinnar, tilkynnti að Rolapp myndi gegna starfi forstjóra og framkvæmdastjóra eftir að fráfarandi framkvæmdastjóri, Jay Monahan, lætur af störfum í lok ársins.

Æðislegt að sjá hann aftur

„Það er frábært að sjá hann aftur,“ sagði Rolapp. „Tiger hefur tekið þátt í öllu ferlinu og lagt mikið af mörkum. Það er æðislegt að sjá hann aftur í góðu formi, svo við erum mjög spennt fyrir því,“ sagði Rolapp

Woods var handtekinn grunaður um ölvunarakstur og fyrir að neita að gangast undir löglegt próf þann 27. mars eftir að jeppi hans rakst á kerru sem var dregin af vörubíl og valt á hliðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×