Golf

Ein vin­sælasta golf YouTube-stjarna heims í Vest­manna­eyjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shiels fann sig vel í Vestmannaeyjum.
Shiels fann sig vel í Vestmannaeyjum. Vísir/facebook-síða Rick Shiels.

Rick Shiels er staddur á landinu en hann er ein vinsælasta YouTube-stjarna heims þegar kemur að golfíþróttinni.

Shiels sýnir frá því á Facebook-síðu sinni að hann hafi spilað hring á golfvellinum í Vestmannaeyjum um helgina.

„Golf á Íslandi er ótrúlegt,“ skrifar Shiels á Facebook og birtir í leiðinni fjórar myndir frá hringnum, eins og sjá má hér að neðan.

Á Facebook er Shiels með 1,5 milljónir fylgjenda en á YouTube með yfir þrjár milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×