Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. júní 2026 13:21 Fólk streymir á Þingvelli. vísir/viktor freyr Von er á rjómablíðu á Þingvöllum þar sem tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram. Tónlist mun óma um svæðið til miðnættis og verður hápunktinum útvarpað í beinni á Bylgjunni.
Fólk er þegar byrjað að streyma á svæðið en klukkan ellefu hófst dagskrá á Valhallarsviðinu. Reiknað er með að túnið steinsnar frá Almannagjá fyllist af tuttugu þúsund tónleikagestum þegar líður á daginn. Jakob Frímann Magnússon, skipuleggjandi tónleikanna, segir von á góðum degi. „Það lítur vel út. Bongóblíða og stemning. Allt klárt og fólk að streyma að á staðinn.“ Tónleikarnir standa til miðnættis. Aðal númer dagsins eru tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo sem hefjast klukkan hálf þrjú. „Þeir koma á svið strax á eftir opnunarræðu forseta sem er klukkan tvö og verða þá í unplugged búningi það er að segja útgáfu með gítara og slagverk. Svo koma þeir aftur klukkan níu með fullu rafmagni, fullum skrúða.“ Tíðar rútuferðir Á annað þúsund starfsmanna vinna að tónleikunum og hefur búnaður og hljóðfæri verið fluttur í tonnatali á svæðið. Jakob hvetur fólk til að leggja af stað sem fyrst til að forða sér undan umferðarþunga. Rútur fara frá Klettagörðum 27 á hálftíma fresti og lagði sú fyrsta af stað klukkan tíu í morgun. „Og eru á hálftíma fresti út daginn. Svo er hægt að taka rútu aftur til baka ef menn eru orðnir saddir tóndaga.“ Búast megi við mikilli stemningu í dag. „Ég held við ættum bara að búa okkur undir dásamlegan dag í okkar yndislega þjóðgarði og fá að njóta tónlistar, menningar og sögu. Njóta bergmálssögunnar og þeirrar dýrðar sem þar blasir við.“ Bylgjulestin er mætt á Þingvelli og verður þar til klukkan fjögur. Tónleikum Kaleo verður útvarpað í beinni á Bylgjunni klukkan hálf þrjú.
Þingvellir Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Tónleikar á Íslandi Bláskógabyggð Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira