Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 22:24 Wyndham Clark hefur ástæðu til að brosa eftir byrjun sína á Opna bandaríska risamótinu í ár. Getty/Warren Little Wyndham Clark sló met á Shinnecock-golfvellinum þegar hann kláraði fyrstu 36 holurnar á Opna bandaríska risamótinu í ár á sjö höggum undir pari.
Clark fylgdi eftir stórbrotinni spilamennsku á fyrsta hring þar sem hann kom inn á 64 höggum, eða sex höggum undir pari, með því að spila á 69 höggum í dag, eða einu höggi undir pari. Hann sló þar með 36 holu skormetið fyrir Opna bandaríska á Shinnecock-vellinum. Sjö undir pari eftir tvo daga. WYNDHAM CLARK! ONE MORE!Birdie at the last to take a 4-shot lead into the clubhouse. pic.twitter.com/2TF75HVvm7— U.S. Open (@usopengolf) June 19, 2026 „Mér fannst ég virkilega geta verið á tveggja stafa tölu undir pari, en það frábæra við þetta er að mér fannst ég ekki vera upp á mitt besta og samt er ég með forystu eins og staðan er núna,“ sagði Clark. „Vonandi get ég sýnt mitt besta um helgina.“ Hann vann þetta sama mót fyrir þremur árum. Árið 2023 var Clark ekki með forystu fyrr en á laugardag fyrir lokahringinn. Þann dag lék hann á pari og hélt aftur af kylfingum á borð við Rory McIlroy, Scottie Scheffler, Cam Smith og Tommy Fleetwood og tryggði sér sinn fyrsta risatitil. 😈😤⛳️ #REDEMPTION — Wyndham Clark says he can maybe "gain all the fans back" following last year's locker room incident with a good weekend at Shinnecock Hills"I've gotten a lot of grief since last year, rightfully so... the thing that's unfortunate is that's not who I am,… pic.twitter.com/9HjUFRGNx3— NUCLR GOLF (@NUCLRGOLF) June 19, 2026 Titilvörn Clarks á Opna bandaríska á Oakmont í fyrra fór úrskeiðis þegar hann lék á átta höggum yfir pari á tveimur dögum og fékk skolla á lokaholunni og missti af niðurskurðinum um eitt högg. Clark skemmdi síðan búningsklefann í klúbbhúsinu og var í kjölfarið bannaður af klúbbnum. Mánuði fyrir Opna bandaríska baðst Clark einnig afsökunar á því að hafa kastað drævernum sínum á PGA-meistaramótinu eftir misheppnað upphafshögg. Á föstudag var Clark spurður út í atvikið og hvort honum fyndist að ímynd hans hefði breyst meðal aðdáenda á síðasta ári vegna þess sem gerðist. Ég hef fengið mikla gagnrýni „Ég hef fengið mikla gagnrýni síðan í fyrra, og það með réttu. Það sem er óheppilegt er að það sem gerðist í fyrra er ekki lýsandi fyrir mig,“ sagði Clark. „Ég vonast til að geta unnið aftur þá aðdáendur sem ég hafði, eða fengið nýja, því þetta var hræðilegt atvik.“ Clark, sem hefur áður talað opinskátt um baráttu sína við andlega heilsu og samstarf sitt við sálfræðiþjálfarann Julie Elion, sagði á föstudag að andlega hliðin hjá honum „færi upp og niður“ og líkti því við hvernig golfleikur hans getur sveiflast. Brotið og bramlað í búningsklefa „Ég var á toppi heimsins, að minnsta kosti í mínum leik, þegar ég vann Opna bandaríska og átti svo nokkur góð ár. Svo næst veit maður af því að maður er að biðjast afsökunar á að hafa brotið og bramlað í búningsklefa ári síðar,“ sagði Clark. „Ef maður hugsar um þetta eins og að klífa Everest þá fer maður upp en stundum þarf maður að fara niður til að komast aftur upp. Ég held að það sé nokkurn veginn það sem gerist bæði á golfvellinum og utan hans. Núna er ég á uppleið aftur, sem er ánægjulegt,“ sagði Clark. Hann er með fjögurra högga forskot þegar þetta er skrifað. Wyndham Clark discusses last year’s U.S. Open incident in the Oakmont locker room, saying he hopes to win back some of the fans he lost.Thoughts on this? ⬇️ pic.twitter.com/Yxi4W7DjEi— Fore Play (@ForePlayPod) June 19, 2026
Opna bandaríska Golf Mest lesið Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Fótbolti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Uppgjörið: Ilves - Stjarnan 2-1 (5-4 eftir vító) | Úr leik eftir maraþonleik í Finnlandi Fótbolti Zrinjski Mostar - Valur | Erfitt verkefni Valsmanna Fótbolti Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Fótbolti Fleiri fréttir Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Sjá meira