Golf

Sjáðu innslagið um Gunn­laug Árna í út­sendingu US Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýjan kafla í íslenska golfsögu í kvöld.
Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýjan kafla í íslenska golfsögu í kvöld. Instagram/@arni_sveinsson

Gunnlaugur Árni Sveinsson var að spila sögulegan hring á Opna bandaríska risamótinu í golfi í kvöld. Sjónvarpsútsendingin frá mótinu sýndi stutt innslag um okkar mann.

Gunnlaugur Árni hefur reyndar lent í talsverðum vandræðum á fyrri níu í kvöld og var kominn átta yfir parið eftir átta holur.

Hér fyrir neðan má sjá innslag um Gunnlaug Árna þar sem sagt er frá þessari sögulegu stund fyrir íslenskt golf.

Sýnt var teighögg hjá íslenska kylfingnum á ellefu holu og í framhaldinu sagt frá afreki hans og leið hans inn á eitt af fjórum risamótum golfsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×