Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. júní 2026 07:03 Hildur Björnsdóttir kynnti meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks þann 27. maí síðastliðinn í Viðey. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að sér hafi orðið ljóst að sín biði uppbyggingarstarf í Sjálfstæðisflokknum eftir að flokkurinn var útilokaður úr meirihluta fyrir fjórum árum síðan. Hún ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón, spurð út í yfirlýsingar þeirra eftir kosningar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hlaðvarpi Vísis þar sem farið er yfir víðan völl með Hildi. Hún er spurð um uppvaxtarárin, menntaskólaárin og baráttu sína við krabbamein svo fátt eitt sé nefnt. Þá er meðal annars rætt um átta ár Hildar í minnihluta í borgarstjórn og meintar erjur innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili. Hlusta má á og horfa á hlaðvarpsþáttinn á Vísi, hlusta á Tal og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Klippa: Hlaðvarp Vísis - Reykvíkingar muni finna fyrir breytingum á næstunni Segir ástæðu fyrir því að að enginn hafi útilokað flokkinn í þetta sinn Hún er einnig spurð út í atburðarásina eftir kosningar nú og yfirlýsingar Miðflokksmanna um meirihlutamyndun þar sem Sjálfstæðismönnum var sagt að hætta að vera litlir í sér og Hildur sögð fara Friðjónsleiðina með meirihlutamyndun sinni. Hvað finnst þér um þessa umræðu sem kom þarna fram hjá Miðflokknum? „Hún er kannski einkennandi fyrir allt það sem ég taldi nauðsynlegt að hreinsa út úr Sjálfstæðisflokknum ef við ætluðum að verða samstarfshæf og var hreinsað út úr Sjálfstæðisflokknum og var þá kannski einmitt ástæða þess að fólk vildi starfa með okkur. Þannig ég myndi nú bara ráðleggja Miðflokksmönnum að breyta um tón ef þeir ætla sér að verða stjórntækir.“ Það hljómar eins og það hafi í raun bara verið persónulegur og jafnvel pólitískur ómöguleiki fyrir þig að mynda meirihluta með Miðflokknum? „Það voru bara allskonar kostir og gallar við allar sviðsmyndir, án þess að ég hafi um það einhver önnur eða fleiri orð. En auðvitað var á framboðslista í efstu sætum hjá Miðflokki bara fullt af nýju fólki, ég sé að þau eru öflug og vonandi láta þau bara til sín taka og taka þátt með okkur í að koma góðum hlutum til leiðar í Reykjavík.“ Einnig er rætt við Hildi um komandi tíma á kjörtímabilinu, nýskipaðan hagræðingarhóp, traust hennar til Ara Edwald í starfi stjórnarformanns Orkuveitunnar, leikskólamálin og samgöngumál. Hildur fagnaði á dögunum stórafmæli, fjörutíu ára afmæli á sama tíma og hún tekur við sem borgarstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn var síðast í meirihluta í borginni fyrir sextán árum síðan, árið 2010 og ljóst að um mikil tímamót er að ræða. Hlusta má á hlaðvarpsþáttinn í heild sinni á Vísi, á Tal og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Hlaðvarp Vísis Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Kennarar óttast framkvæmd símafrís Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Innlent Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Innlent Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Innlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Sjá meira