Brennivín hlaut gullverðlaun Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. júní 2026 14:37 Eimingarmeistarinn Úlfur Árdal með Brennivín frá Kveldúlfi distillery. Jólabrennivín frá Kveldúlfs Distillery hlaut gullverðlaun á alþjóðlegu vínkeppninni International Wine & Spirit Competition (IWSC). Verðlaunin staðfesti sterka stöðu brennivíns á alþjóðavettvangi og sýni að íslenskt handverk eigi fullt erindi meðal fremstu framleiðenda heims.
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara frá framleiðendum um allan heim metnar af sérfræðingum greinarinnar í blindsmakki þar sem bragð, gæði, jafnvægi og karakter ráða úrslitum. Jólabrennivínið hlaut 95 stig. „IWSC er ein virtasta fagkeppni heims fyrir sterk vín og þar eru vörur metnar í blindsmakki af reynslumiklum sérfræðingum. Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að sjá Brennivín fá svo sterka viðurkenningu. Brennivínið okkar fékk 95 stig, sem er með því hæsta sem maður sér í svona keppni. Þessi verðlaun eru frábær viðurkenning á því handverki, metnaði og þróunarstarfi sem liggur að baki framleiðslunni í dag,“ segir Úlfar Árdal, eimingarmeistari hjá Kveldúlfi Distillery. Gullverðlaunin komu fyrir Jólabrennivín frá árinu 2025 sem hlaut 95 stig í keppninni. „Sýna þessar niðurstöður styrk Brennivíns sem vörumerkis og hversu stórkostlegan vökva flöskurnar frá okkur hafa að geyma,“ segir Úlfar. Brennivín hefur verið hluti af íslenskri matar- og drykkjarmenningu frá árinu 1935 og því fylgt Íslendingum í rúm níutíu ár við stór og smá tilefni. Brennivín í útrás „Erlendis vekja svona verðlaun töluverða athygli. Við höfum í rúman áratug verið í útflutningi til Bandaríkjanna og vinsældir Brennivíns sívaxandi vestanhafs. Líkt og með annan útflutning til Bandaríkjanna var mikil óvissa varðandi hækkandi tolla, en það fór betur en á horfðist og árið fer virkilega vel af stað,“ segir Úlfar. Hann segir brugghúsið munu á næstunni stækka vöruúrval sitt í Bandaríkjunum og níutíu ára afmælisútgáfan af Brennivíni verði þar gefin út í takmörkuðu magni. Íslenskt brennivín er allra meina bót. „Það er ótrúlega skemmtileg tilfinning að labba inná flottustu kokteilbarina til dæmis á Manhattan og sjá Brennivínið okkar uppí hillu og á kokteilaseðlum, það vissulega fyllir mann stolti,“ segir Úlfar. Hann segir sömuleiðis ánægjulegt að fylgjast með hvernig Brennivín hefur á undanförnum árum fundið sér nýjan sess í íslenskri kokteilamenningu. „Fremstu kokteilbarþjónar landsins hafa í auknum mæli tekið Brennivín upp á arma sína sem fjölhæft og spennandi hráefni sem getur komið í stað annarra tærra sterkvína í fjölmörgum klassískum kokteilum. Sú þróun hefur kynnt Brennivín fyrir nýjum hópi neytenda og sýnt að þótt vörumerkið byggi á nær aldarlangri sögu þá á það ekki síður heima í nútíma drykkjarmenningu,“ segir Úlfar.
Áfengi Drykkir Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fleiri fréttir Brennivín hlaut gullverðlaun Sjá meira