Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. júní 2026 20:00 „Þetta er búin að vera einhver tíska í einhvern tíma á öllu landinu og við skiljum þetta ekki alveg.“ Grafarvogslaug Ungir menn velja í síauknum mæli nærbuxur og stuttbuxur til klæða í sundi fram yfir hinar hefðbundnu sundbuxur. Forstöðukona Grafarvogslaugar segir um mikið vandamál að ræða enda geta nærbuxurnar verið óhreinar. Fréttamaður kynnti sér þetta nýja tískufyrirbæri en það má sjá í spilaranum hér að neðan.
Ný menning meðal ungra manna hefur rutt sér til rúms hér á landi en það er að koma klæddur í nærbuxum og stuttbuxum í skiptum fyrir hinar hefðbundnu sundbuxur. Svo virðist sem að tískufyrirbærið sé landlægt en mbl.is vakti fyrst athygli á málinu. Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir, forstöðukona Grafarvogslaugar, segir um mikið vandamál að ræða og segir fyrirbærið ekki vera töff. „Nei þetta er ekki viðurkenndur sundfatnaður svona stuttbuxur. Þetta er búin að vera einhver tíska í einhvern tíma á öllu landinu og við skiljum þetta ekki alveg.“ Að hennar sögn er að mestu leyti um unglinga að ræða en einnig hefur sést til manna á þrítugsaldri taka þátt í tískunni. „Þetta eru nærbuxur og við vitum ekki hvort þær séu hreinar eða skítugar. Við getum ekki fylgst með því hvort þær séu hreinar eða óhreinar. Við viljum að fólk sé í viðurkenndum sundfatnaði. Ef við erum ekki í því þá fer það illa með hreinsikerfin okkar.“ Hún tekur fram að nærbuxum fylgi óhreinindi. Því meiri óhreinindi sem eru í lauginni því meira þarf að nota af klór sem bitni á upplifun allra sundlaugargesta. „ Hversu algengt er þetta? Hversu oft sjáið þið þetta? „Bara á hverjum einasta degi. Það eru allir að gera sitt besta hérna í sundlaugunum og gestir eru líka alltaf að hjálpa okkur að fá fólk til að þrífa sig og vera í hreinum fötum og svona. Við værum líka til í að þessi umræða væri tekin inni á heimilum hjá fólki. Svo virðist sem æðið tengist að einhverju leyti hinni svokölluðu söggunarmenningu ungmenna þar sem buxurnar eru látnar síga fyrir neðan rass. Það virðist skipta höfuð máli hjá drengjunum að það sjáist í nærbuxnastrenginn. „Láta buxurnar hanga svona, það er mjög töff. Sama á við um stuttbuxur og sundbuxur, láta sjást í nærbuxurnar. Svo ferðu náttúrulega ekki í hvaða merki sem er heldur. Þetta verður að kosta. Við vilijum bara sjá fólk í venjulegum sundfatnaði og að þetta tískufyrribæri detti úr tísku. Þetta er ekki boðlegt.“ Þá reyndi fréttamaður að stinga sér til sunds en var fljótt skammaður af sundlaugarverði fyrir að vera ekki í viðurkenndum sundfatnaði.
Sund Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira