Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Aron Guðmundsson skrifar 26. maí 2026 13:00 Russell og Antonelli gáfu ekkert eftir í baráttunni innan brautar um nýliðna helgi Vísir/Getty Toto Wolff, liðsstjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, segist mögulega þurfa að stíga inn á milli í baráttu ökuþóra liðsins um heimsmeistaratitilinn eftir að nær upp úr sauð milli þeirra í Kanada um nýliðna helgi.
Það er yngri og óreyndari ökuþór liðsins, Ítalinn Kimi Antonelli, sem leiðir stigakeppni ökuþóra með 43 stigum eftir keppnishelgi Formúlu 1 í Kanada um helgina. Antonelli vann þar sinn fjórða sigur á Formúlu 1 ferlinum, jafnframt þann fjórða í röð á meðan að liðsfélagi hans George Russell féll úr leik vegna vélarbilunar. Fyrir óhappið í bíl Russell höfðu hann og Antonelli verið að berjast hart um fyrsta sætið í keppninni en fyrr um keppnishelgina í sprettkeppni tókust þeir einnig á. Eftir þá keppni var boðaður liðsfundur þar sem reynt var að róa ökuþórana en það virðist ekki hafa skilið tilætluðum árangri með við gang keppninnar á sunnudaginn. Litlu mátti muna að þeir hefðu keyrt hvor annan úr keppninni. Barátta tveggja liðsfélaga hefur oft skotið upp kollinum í sögu Formúlu 1 og hefur sömuleiðis oft endað með ósköpum. Um þetta er Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, meðvitaður. Vissulega auki svona barátta skemmtanagildi mótaraðarinnar. „En það er líka önnur hlið á þessu sem við þurfum að skoða. Þeir voru nálægt því að aka á hvorn annan í nokkur skipti,“ sagði Wolff í viðtali. „Það er mikilvægt fyrir okkur að rýna í stöðuna og ræða hana við ökuþórana. Hvort þeirra tilfinning sé að þetta væri of mikið og hvernig við getum forðast svona aðstæður.“ Mercedes sé með mesta hraðann í bíl sínum af liðunum í Formúlu 1 en þegar að Antonelli og Russell hafi verið að berjast hafi þeir um leið tapað tíma á keppinauta sína. „Það gætu komið upp aðstæður þar sem við þurfum að stíga inn í.“
Akstursíþróttir Mest lesið Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Íslenski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deildinni Sport Fleiri fréttir Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira