Fyrsti leikur Vitar Games fær góðar undirtektir Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 22:32 Leikurinn gerist í fyrri heimsstyrjöldinni og blandar saman herkænsku og skiplagshæfni. Vitar Games Íslenska leikjafyrirtækið Vitar Games birti nýverið fyrstu stikluna að fyrsta leiknum. Sá heitir Dig In og gerist í fyrri heimsstyrjöldinni, sem er ekki algengt sögusvið tölvuleikja.
Á sama tíma og stikla leiksins var birt var leikurinn opinberaður á Steam, þar sem rúmlega hundrað þúsund manns eru búnir að setja hann á óskalistann sinn. Um þrjár milljónir manna hafa horft á stikluna á samfélagsmiðlum og myndaveitum. Eins og áður segir er Dig In frumraun starfsmanna Vitar Games en fyrirtækið var stofnað af Baldvini Albertssyni árið 2021. Ævar Örn Kvaran, meðstofnandi gekk til liðs við félagið 2023. Leikurinn blandar saman herkænsku og öðrum hæfileikum og setur spilara í spor yfirmanns á víglínunni í fyrri heimsstyrjöldinni. Þar þurfa þeir að skipuleggja skotgrafir sínar fyrir árásir óvina, tryggja hermönnum birgðir og gera ýmislegt annað til að sigra og komast heim fyrir jól, eins og gjarnan var og er gantast með. Dig In snýst um að skipuleggja skotgrafir í fyrri heimsstyrjöldinni. Spilarar þurfa að verjast árásum óvina og sækja fram.Vitar Games „Það að vera komin inn á Steam er stór áfangi fyrir Dig In og það er afar gaman að sjá þennan mikla áhuga síðustu daga,“ segir Baldvin Albertsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Vitar Games í yfirlýsingu. „Við höfum lagt mikla vinnu í að byggja upp virkt samfélag í kringum leikinn á samfélagsmiðlum og það er greinilegt að sú vinna er farin að skila sér. Þessar viðtökur gefa okkur mikla orku inn í næstu mánuði, enda styttist nú í formlega útgáfu leiksins eftir 3 ára þróun.“ Dig in kemur út seinna á þessu ári. Í næsta mánuði verður þó hægt að spila prufuútgáfu af leiknum.
Leikjavísir Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Fleiri fréttir Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Sjá meira