Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 15:39 Frá Norðurfirði á Ströndum. Vísir/Egill Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fóru fram í mars vegna ágalla. Sveitarstjórnir beri að ákveða í sameiningu hvenær önnur kosning fari fram en ljóst sé að kosið verði til sveitarstjórna í báðum sveitarfélögum á morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að það sé niðurstaða innviðaráðuneytisins að ágalli hafi verið á framkvæmd íbúakosninganna í Árneshreppi þar sem ekki var tryggt að kjósendur gætu greitt atkvæði á áður auglýstum opnunartíma. „Kjósendur verði að geta treyst því að kjörstaðir séu að jafnaði opnir á auglýstum opnunartíma. Ekki var talið að unnt væri að útiloka að hið takmarkaða aðgengi að kjörstað hafi dregið úr kosningaþátttöku í Árneshreppi. Það er mat ráðuneytisins að um verulegan ágalla sé að ræða sem valdi ógildingu íbúakosninganna.“ Kosið í tvennu lagi á morgun Ennfremur segir í tilkynningunni að ráðuneytinu hafi borist kæra vegna íbúakosningarinnar í apríl innan lögmælts kærufrests. Meðan kæran hafi verið til meðferðar í ráðuneytinu hafi ekki verið unnt að staðfesta sameiningu sveitarfélaganna. „Þá rann einnig út framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga og kosning hófst formlega samkvæmt kosningalögum. Það þýðir að ljóst hefur verið um nokkurt skeið að kosningar færu fram í hvoru sveitarfélagi fyrir sig á morgun 16. maí.“ Segir að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga kveði á um það að ef kosning sé úrskurðuð ógild skuli fara fram ný íbúakosning, svokölluð uppkosning. Um sé að ræða endurtekningu á fyrri kosningu með sömu kjörskrá, sveitarstjórnum sveitarfélaganna beri að ákveða í sameiningu hvenær uppkosning fari fram.
Árneshreppur Kaldrananeshreppur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira