„Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Jakob Bjarnar skrifar 13. maí 2026 15:06 Snorri Másson, eða Skorri Mánason, er til viðfangs í lokaprófi í þroskasálfræði, í prófi sem Bergjót Gyða prófessor samdi. vísir/vilhelm/Bylgjan Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor við menntavísindasvið HÍ í sálfræði, hafnar því að Snorri Másson þingmaður Miðflokksins sé hafður að háði og spotti í spurningu sem var ein af áttatíu í lokaprófi á menntavísindasviði.
Skjáskot með upplýsingum um spurningu sem lögð var fyrir nemendur í lokaprófi í áfanganum ÞRS215G Þroskasálfræði: Allt æviskeiðið sem kenndur er á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, hefur flögrað um samfélagsmiðla og er svohljóðandi: „Skorri Mánasson, 85 ára, óttast að það að flagga regnbogafánanum í skólum landsins geti haft áhrif á að fleiri börn skilgreini sig sem LGBTQIA+. Þegar hann var hins vegar spurður hvaðan hann hafi fengið þessar upplýsingar eða hugmyndir, getur hann ekki rifjað það upp.“ Rétt svar var: source amnesia Svarið við spurningunni er „source amnesia“ sem eru minnisglöp sem lýsa sér í því að muna ekki hvað hvaðan upplýsingar eru fengnar fyrir því sem þú heldur fram. Oddviti Sósíalistaflokksins kom hvergi nærri málum Ekki verður betur séð en að Snorri Másson þingmaður Miðflokksins sé þarna hafður að háði og spotti og þegar haft er í huga að einn aðstoðarkennarinn er Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í borginni, fara að renna á mannskapinn tvær grímur og þetta er umsvifalaust sett í pólitískt samhengi. Silja Sóley, sem hefur farið mikinn sem oddviti Sósíalistaflokksins, er aðstoðarkennari í áfanganum en hún kannast ekkert við spurninguna. Og vildi vísa öllum spurningum varðandi kúrsinn til Bergljótar Gyðu.vísir/einar Silja Sóley kannaðist hins vegar ekki við þessa spurningu þegar eftir því var leitað og sagði að sitt hlutverk í tengslum við þennan tiltekna áfanga hefði falist í að fara yfir verkefni. Hún hefði með öðrum orðum ekkert með hana að gera. Bergljót Gyða staðfestir þetta. Hún segir reyndar að spurningin sem skjáskotið sýni sé ekki í fullu samræmi við þá spurningu sem lögð var fyrir á lokaprófinu. En spurt er hvort smekklegt sé á vettvangi akademíunnar að taka með svo augljósum hætti fyrir stjórnmálamann í lokaprófi. „Það er algengt í háskólanámi og -kennslu að leggja út af málefnum líðandi stundar, þar á meðal því sem stjórnmálamenn tjá sig um í opinberri umræðu, og tengja við hugtök og kenningar sem kennd eru í námskeiðum,“ segir Bergljót Gyða. Hafnar því að verið sé að hafa Snorra að háði og spotti Þegar Gyða er spurð hvort þetta sé uppleggið í námskeiðinu, að taka það sjónarhorn sem Snorri Másson viðraði á dögunum, en Snorri er augljós fyrirmynd hins tilbúna dæmis, og hafa að háði og spotti hafnar hún því algerlega að sá sé tilgangurinn. Bergljót Gyða segir það sannarlega ekki hafa verið markmiðið að gera lítið úr hvorki einum né neinum með spurningunni. Þarna var verið að taka dæmi úr samtímanum á fyrirbæri sem nauðsynlegt er að nemendur þekki og kunni skil á.háskóli íslands „Hér er sannarlega ekki markmiðið að gera lítið úr eða hæðast að neinum. Vel þekkt og mikið rætt dæmi úr opinberri umræðu er nýtt sem efniviður í svokallaða „vinjettu“ eða örsögu um eina birtingarmynd hugtaks sem mikilvægt er að nemendur í námskeiðinu tileinki sér og skilji.“ Þegar Bergljót Gyða er spurð hvort þetta megi ekki heita sérstaklega vafasamt í ljósi þess að Silja Sóley gegndi stöðu aðstoðarkennara svarar hún því svo til að hún hafi ekki verið að hugsa um sveitarstjórnarkosningar þegar hún samdi spurninguna. „Silja Sóley var aðstoðarkennari á námskeiðinu sem annaðist verkefnayfirferð og kom því hvorki að kennslu námsefnisins né að lokaprófinu,“ segir Bergljót Gyða.
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Háskólar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira