Tvennt ólíkt að vera félagi í íþróttafélagi og iðkandi Jakob Bjarnar skrifar 12. maí 2026 13:30 Andri, framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir reglurnar skýrar, golfklúbbunum er óheimilt að meina fólki að gerast félagar. vísir/vilhelm/arnar Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ segir tvennt ólíkt að vera félagi í íþróttafélagi og iðkandi. Óheimilt sé að meina fólki aðgengi að íþróttafélagi. Þetta segir Andri skýrt í lögum ÍSÍ.
Vísir birti frétt í morgun sem vakti verulega athygli en þar er greint frá bréfi sem Helga Þórðardóttir, lögfræðingur stjórnsýslusviðs ÍSÍ, skrifaði og sendi á GSÍ sem sendi það áfram til aðildarfélaga Golfsambandsins. Hvar á að setja línuna? Þar er að finna leiðbeiningar og kemur meðal annars kemur fram að golfklúbbunum er óheimilt að halda fólki utan félaga. En í stærstu golfklúbbunum hefur tíðkast lengi, ekki síst eftir að golfæðið náði hámarki, að halda úti biðlistum. Þá hafa þessir biðlistar lengst. Andri segir að þarna sé verið að skýra ákveðna hluti en aðalatriði sé að átta sig á greinarmuninum sem gerður er á þessu tvennu. Það megi einfaldlega ekki takmarka aðgengi fólks að íþróttafélögum. „Eiga allir sem eru ljóshærðir að geta gengið í félagið en aðrir ekki? Hvar dregur þú línuna? Íþróttafélög þurfa að vera opin fyrir alla. Allir eiga að hafa jafnt aðgengi að íþróttafélögum,“ segir Andri. Hausverkur golfklúbbanna að vera með útfærsluatriði Framkvæmdastjórinn segir að lög ÍSÍ séu samræmd fyrir íþróttahreyfinguna í heild sinni og þessi regla hafi farið í gegnum ótal íþróttaþing og lögfræðinga. Andri nefnir sem dæmi hópíþróttir á borð við fótbolta, þar sé fullt af félögum en ekki séu allir sem nýti aðstöðuna og spili. Þetta fari ekki endilega saman og félagaaðild geti verið með ýmsu móti. Frá Grafarholti sem Golfklúbbur Reykjavíkur hefur umsjá með. Þar eru félagar 3,500 og vel á annað þúsund á biðlista. Ef fram fer sem horfir stefnir í að þar verði félagar fimm þúsund talsins.vísir/vilhelm Andri segir það rétt að aðild að golfklúbbi gangi yfirleitt út á að félagar hafi þar með aðgang að golfvelli viðkomandi félags. „Við erum að reyna að skýra þetta. Ef við tökum til að mynda Þorlákshöfn sem dæmi þá er þar verið að bjóða sérstaka aðild án þess þó að viðkomandi séu félagar. En takmörkuð félagsaðild er óheimil. Takmörkuð iðkunaraðild er svo annar handleggur.“ Það er þá hausverkur golfklúbbanna að vera með útfærsluatriði, það sé ekki með þessu verið að opna fyrir að allir komist inn á vellina. „Það er hvers klúbbs að útfæra það. En þú getur ekki bannað fólki að gerast félagi í golfklúbbi.“
Golf Golfvellir Félagasamtök Stjórnsýsla ÍSÍ Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira