Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 11. maí 2026 16:01 Elsa og Júlíanna voru að opna stúdíóið ÓRA. Við strendur Skerjafjarðar hefur nýtt hönnunarstúdíó litið dagsins ljós. Það ber heitið ÓRAR og er hugarfóstur og samstarfsverkefni listamannanna Elsu Jónsdóttur og Júlíönnu Ósk Hafberg. Þær fögnuðu með glæsilegri opnun á Parliament hótelinu um helgina.
Stúdíóið einbeitir sér að skúlptúrískum húsgögnum og heimilismunum, þar sem handverk, draumkennd ímyndun og organísk form mætast í leik þar sem munirnir leysa upp mörkin á milli listar, hönnunar og ímyndunar. Elsa og Júlíanna hafa látið til sín taka í menningarlífi Reykjavíkur síðastliðin ár. Þær hafa báðar starfað við myndlist og unnið með hina ýmsu miðla, stundað kennslu og staðið að rekstri menningarrýma svo eitthvað sé nefnt. Í ársbyrjun stóðu þær báðar á tímamótum, í leit að nýjum áskorunum og tóku þá ákvörðun að stofna ÓRA. „Þetta hefur verið ævintýralegur leiðangur frá byrjun, við erum að skoða samskipti fólks við sitt nærumhverfi og þann norræna minímalísma sem umlykur okkur, en okkur langar gagngert að fara í gagnstæða átt við hann,“ segir Júlíanna aðspurð um tilkomu stúdíósins og bætir við: „Þetta er einhverskonar maxímalískur draumur lita og gleði.“ Stelpurnar lýsa ÓRUM sem einhvers konar maxímalískum draumi lita og gleði.Vikram Pradham Fyrstu verkum ÓRA var fagnað með pompi og prakt á setustofu Parliament Hótel við Austurvöll. „Munirnir spruttu úr ljóðlínu Sigurðar Elíassonar „lækur tifar létt um máða steina“. Hangandi ljós og hægindastóll taka á sig flæðandi vatnsmynd í gegnum skúlptaðan efnivið, form sem eru í senn kunnug og óræð birtast í munum sem við öll þekkjum og notum dags daglega,“ segja stelpurnar. ÓRAR munu ekki láta þar kyrrt við liggja og er ýmislegt í kortunum; „Þessi sýning er í raun fyrsta kynning merkisins en línan stækkar strax í haust með opnun jólasýningar, þar sem kemur á markað borðbúnaður, borðstofuborð og stólar svo eitthvað sé nefnt,“ segir Elsa að lokum. Hér má sjá vel valdar myndir frá opnun: Gestir virða nýja strauma hönnunar fyrir sér. Vikram Pradham Líf, list og fjör. Vikram Pradham Kolbrún Birna, Elsa og Júlíanna Ósk. Vikram Pradham Stúdíóið einbeitir sér að skúlptúrískum húsgögnum og heimilismunum eins og þessu loftljósi. Vikram Pradham Fjölbreytt flóra gesta leit við. Vikram Pradham Elsa ásamt syni sínum. Vikram Pradham Litríkur og líflegur stóll.Júlíanna Ósk Hafberg Lifandi jazz og listrænir heimilismunir.Hlynur Helgi Hallgrímsson Elsa og Júlíanna í skýjunum með viðburðinn.Aðsend Grænn og glæsilegur.Júlíanna Ósk Hafberg ÓRAR segja sögur í gegnum efni og form.Júlíanna Ósk Hafberg Sýningin var fyrsta kynningin á ÓRUM en stelpurnar ætla sér stóra hluti. Júlíanna Ósk Hafberg
Sýningar á Íslandi Menning Tíska og hönnun Myndlist Mest lesið Gusugleði í Vesturbæjarlaug Tíska og hönnun Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu Lífið Stjörnulífið: Áslaug Arna málaði New York rauða Lífið Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Lífið samstarf Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Tíska og hönnun Vill tæpa tvo milljarða frá Samsung vegna myndar Lífið Borgaði 100 þúsund fyrir hárlokk úr Hauki Holm Lífið Þingmaður á verðlaunapalli með skólastrákum: „Auðvitað er þetta fyndið“ Lífið Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Menning Fljúgandi furðuhlutir, leyndarhyggja yfirvalda og samsæriskenningar Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira