Slagsmál á æfingasvæði Real Madrid Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. maí 2026 23:30 Áflog brutust út á æfingasvæði Real Madrid í dag. Antonio Villalba/Real Madrid via Getty Images Allt virðist vera á suðupunkti hjá Real Madrid. Leikmenn liðsins lentu í áflogum á æfingu, stórstjarnan Kylian Mbappé hefur hlotið harða gagnrýni og þjálfarinn Alvaro Arbeloa virðist vera að lenda í útilokunaraðferðinni.
Marca greinir frá því að Federico Valverde og Aurelien Tchouameni hafi tekist hart á. Rifrildið hófst úti á velli, hélt áfram alla leið inn í búningsklefa og er lýst sem mestu átökum sem sést hafa á Valdebas æfingasvæðinu. Valverde og Tchouameni ýttu í hvorn annan en létu höggin ekki fljúga samkvæmt Marca. Tchouameni og Valverde eru sagðir hafa lent í áflogum. Helios de la Rubia/Real Madrid via Getty Images Þetta er í annað sinn í vikunni sem rifrildi brjótast út á æfingasvæði Real Madrid en áður höfðu Antonio Rudiger og Alvaro Carreras staðið í stympingum samkvæmt Marca. Andrúmsloftið innan herbúða Real Madrid er sagt mjög spennuþrungið og þjálfarinn Alvaro Arbeloa virðist ekki valda verkefninu. Sex leikmenn liðsins eru sagðir hættir að tala við hann en þeir eru ekki nafngreindir í umfjöllun Marca. Þá hjálpar það ekki til að ein stærsta stjarna liðsins, Kylian Mbappé, hefur hlotið harða gagnrýni fyrir að skella sér í frí til Ítalíu frekar en að sinna endurhæfingu í Madríd vegna meiðsla. Mbappé lenti í útistöðum við aðstoðarþjálfara Arbeloa þegar hann sneri aftur til æfinga í gær. Leikmenn Real Madrid hafa líka tekið afstöðu í málinu, með því að birta myndir af liðinu án Mbappé á samfélagsmiðlum.
Spænski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira