„Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. maí 2026 12:15 Sinueldur í Heiðmörk. Vísir/Vilhelm Sviðsstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir öll meðferð elds úti í náttúrunni varasama á þessum árstíma. Gróðureldar sem kvikni séu að megninu til slys en slökkviliðið er með aukið viðbragð vegna gróðurelda. „
Við höfum náttúrulega alltaf áhyggjur af gróðureldum á vorin, í svona þurrkatíð og oft á tíðum þá kemur ekki mikil rigning en stundum erum við heppinn og það rignir og þá er ekki eins mikil hætta,“ segir Brynjar Þór Friðriksson sviðsstjóri á aðgerðasviði hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Öll meðferð elds er mjög varasöm á þessum árstíma gagnvart gróðri því það þarf mjög lítið til þess að koma af stað gróðureldi.“ Hann segir ekki mikið um íkveikjur og lítið þurfi til að eldar kvikni, glerbrot sem liggur á jörðinni geti orðið að báli. „Það getur líka verið einhver sem er á ferð framhjá og hendir sígarettustubbi eða einhverju öðru. Það getur verið einhver sem er úti að elda með einnota grill sem hann leggur í grasið og það eru endalausar sögur af því hvernig upptökin eru.“ Nota sérstakan búnað til að eiga við gróðurelda Erfiðast sé að eiga við elda á stórum svæðum fyrir utan bæjarmörkin, Heiðmörk, Mosfellsheiði og Kjalarnes en þar kviknaði einmitt gróðureldur í gær sem vel gekk að slökkva. „Fleiri svæði þar sem við komumst illa í hann. Við þurfum að komast að staðnum, geta sótt í eldinn og slökkt hann og það getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar þar sem við komum ekki tækjum að,“ segir Brynjar. „Við erum með sérstakan búnað sem við setjum upp sérstaklega til að fara út fyrir vegi og geta sótt í elda sem eru á erfiðari svæðum. Í raun og veru tökum við tilkynninguna mjög alvarlega strax,“ bætir Brynjar við aðspurður um sérstakt viðbragð slökkviliðsins vegna gróðurelda þessa dagana. Mínútur skipti máli og eldur geti breiðst hratt út á skömmum tíma. Hann segir mikilvægt að fólk bregðist við. „Ef þú ert á staðnum og sérð að þú missir frá þér eitthvað sem kveikir í þá reynir þú að slökkva fyrst. Ef þú ræður ekki við þetta þá er bara að hringja í okkur strax og tilkynna hvar eldurinn er og hvernig hann er að breiðast út.“
Slökkvilið Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira