Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Aron Guðmundsson skrifar 25. apríl 2026 23:01 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann og leikmaður liðsins, Jón Dagur Þorsteinsson Vísir/Samsett Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, er fullviss um að lið sitt endi á meðal efstu liða í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta að tímabili loknu. Hann kom leikmanni sínum Jóni Degi Þorsteinssyni enn og aftur til varna, segir það ekki vinna með honum að vera með vegabréf frá Íslandi.
Brann gerði 1-1 jafntefli gegn Rosenborg á útivelli dag þar sem að Jón Dagur, sem hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með liðinu af fjölmiðlum ytra, skoraði eina mark Brann beint úr aukaspyrnu. Glæsilegt var það. Brann hefur gengið erfiðlega að sækja stig úr fyrstu sex leikjum tímabilsins í norsku úrvalsdeildinni. Liðið er aðeins með fjögur stig af átján mögulegum og vermir þrettánda sæti sem stendur. Freyr hefur ekki áhyggjur á meðan að hann sér frammistöðu sinna manna taka skref í betri átt. „Ég rýni ekki í stöðutöfluna á þessum tímapunkti á tímabilinu. Ég mun skoða hana í nóvember þegar að tímabilinu lýkur. Ég er hundrað prósent viss um að Brann verði á meðal efstu fjögurra liða þá,“ sagði Freyr í samtali við Bergens Avisen eftir jafnteflið gegn Rosenborg í dag. Varðandi Jón Dag og gagnrýnina sem hann hefur fengið á sig í aðdraganda leiksins í dag sagði Freyr að væntingarnar í hans garði hafi kannski verið of miklar til að byrja með. „Hann er líka óheppinn að vera með vegabréf frá Íslandi. Ef þú skilar ekki frammistöðu á hæsta gæðastigi þá mun gagnrýnin koma,“ sagði Freyr. Hvort hann hafi átt við að til meira sé ætlast af erlendum leikmönnum sem koma í liðið eða bara að Jón hafi liðið fyrir það góða orðspor sem íslenskir leikmenn hjá Brann hafa skapað skal látið ósagt. „Svoleiðis er það bara en Jón var góður í dag.“
Norski boltinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Sjá meira