Lífið

Gjör­sam­lega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tómas fór yfir strikið hjá sér persónulega í ræktinni.
Tómas fór yfir strikið hjá sér persónulega í ræktinni.

Hvað er eiginlega Hyrox? Fréttamaðurinn Tómas Arnar prófaði þetta nýjasta æði á eigin skinni með misjöfnum árangri í Íslandi í dag á Sýn í vikunni.

Íslendingar virðast flykkjast til útlanda til að taka þátt í Hyrox-keppnum og birta af því fjöldann allan af myndskeiðum og myndum á samfélagsmiðlum. Tómas ræddi við tvo iðkendur sem tóku þátt í slíkri keppni. Að þeirra sögn gátu þær ekki gengið í tvo daga eftir mótið.

„Þetta er nýja æðið bara um allan heim. Hyrox er blanda af kílómetrahlaupi og átta mismunandi æfingastöðvum á milli hlaupa. Það eru átta hlaup og átta stöðvar,“ segir Evert Víglundsson, eigandi Crossfit Reykjavíkur.

„Galdurinn er að þjálfa sig upp í að geta verið á ákveðnum hraða án þess að mynda það mikla sýru að þú sért ekki að endurnýta hana. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum út í heim að keppa í svona alþjóðlegum keppnum. Á síðasta ári voru 650.000 manns sem að kepptu í Hyrox keppnum um allan heim. Þetta er á fleiri og fleiri stöðum um allan heim hverja einustu helgi. Það er bara allt frá krökkum og upp í ömmur og afa. Hver bara gerir þetta með sínu nefi, á sínum hraða,“ segir Evert.

Sjá má innslag Tómasar úr Íslandi í dag hér að neðan:

Elskar fjölbreytileikann

„Ég byrjaði í ágúst í fyrra. Ég var í annarri íþrótt og missti hana út af meiðslum og svo var þjálfari hér sem hafði samband við mig og bauð mér að prófa og ég hélt ég ætti ekkert í þetta. En ég prófaði og ég fékk bara algjöra dellu og ég bara get ekki hætt,“ segir Hekla Sif Magnúsdóttir iðkandi í Hyrox.

Hekla og Margrét létu Tómas finna fyrir því.

„Ég hef ekkert verið að æfa beint Hyrox en ég mæti stundum á og til á æfingar og ég elska fjölbreytileikann. Þannig að já, ég er alveg búin að vera lengi í þessu og búin að keppa tvisvar,“ segir Margrét Lilja Burrell sem stundar Hyrox.

Tómas Arnar fékk sjálfur að prófa Hyrox og má með sanni segja að það hafi gengið upp og niður, enda erfitt eins og sjá má í klippunni að ofan og meðfylgjandi myndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.