Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2026 18:01 Liam Rosenior á blaðamannafundi í dag. getty/Darren Walsh Þrátt fyrir að Chelsea hafi tapað fjórum deildarleikjum í röð án þess að skora finnur knattspyrnustjórinn Liam Rosenior fyrir fullum stuðningi frá eigendum félagsins.
Chelsea tapaði 0-1 fyrir Manchester United á laugardagskvöldið og er nú sjö stigum frá 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Sæti Roseniors þykir heitt en hann segir að eigendur Chelsea styðji hann. „Hundrað prósent. Þeir hafa sýnt mér stuðning í okkar daglegu samtölum þar sem íþróttastjórarnir hafa verið með. Stuðningur þeirra við mig og liðið hefur verið magnaður. Við treystum á þá. Við þurfum að vinna fótboltaleiki núna,“ sagði Rosenior. Í síðustu viku sagði einn af eigendum Chelsea, Behdad Eghbali, að hann hefði trú á því að Rosenior gæti verið farsæll í starfi hjá Chelsea en fótbolti væri úrslitabransi. Eghbali sagði jafnframt að Chelsea gæti keypt eldri og reyndari leikmenn næsta sumar en leikmannahópur liðsins er sá yngsti í ensku úrvalsdeildinni. „Hann vill vinna titla reglulega og ná árangri. Við höfum rætt um það, núna og í sumar og hvernig við byggjum upp,“ sagði Rosenior aðspurður um ummæli Eghbalis. „Við erum allir meðvitaðir um hvað við þurfum að gera og hvað við viljum gera til að koma þessu félagi á þann stað sem það á að vera á.“ Chelsea sækir Brighton heim annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Chelsea FC Tengdar fréttir „Hann var grátandi í hálfleik“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið. 19. apríl 2026 22:02 Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Manchester United sótti þrjú stig á Stamford Bridge eftir sigur á Chelsea í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar. 18. apríl 2026 20:55 Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira
„Hann var grátandi í hálfleik“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið. 19. apríl 2026 22:02
Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Manchester United sótti þrjú stig á Stamford Bridge eftir sigur á Chelsea í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar. 18. apríl 2026 20:55