„Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. apríl 2026 14:19 Mynd úr safni. Getty Milljónir manna horfa á myndefni af öðrum mönnum að nauðga meðvitundarlausum eiginkonum sínum og kærustum inni á spjallþráðum á Telegram og öðrum kimum internetsins í hverjum mánuði. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Fréttastofu CNN þar sem rætt er við fórnarlömb slíks ofbeldis.
Á spjallþráðunum sem CNN kynnti sér má sjá þúsundir manna óska eftir og deila ráðum um hvernig er best að byrla mökum sínum ólyfjan með það fyrir stafni að þær verði án meðvitundar. Í kjölfarið nauðga þeir eiginkonu sinni og deila myndefni af því. Selja ólyfjan og deila ráðum Þó nokkrir slíkir hópar fyrirfinnast á spjallþráðum og samskiptaforritum. Ein vefsíðan hýsir meira en tuttugu þúsund myndskeið af svokölluðu „svefnefni“. Þar virðast konur án meðvitundar á meðan maður hefur samræði við þær. Umferð um vefsíðuna í febrúar mældist 62 milljónir. „Kona mín veit meira að segja ekki að ég tók hana upp,“ segir einn notandi á spjallþræði. „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ spyr annar. Á spjallþræðinum „ZZZ“ á samskiptaforritnu Telegram selja aðilar ólyfjan. Í auglýsingum er lofað að eiginkonan muni hvorki finna fyrir neinu né muna eftir því sem á sér stað. Aðrir selja aðgang að streymi af verknaðarstundu á tuttugu bandaríkjadali. „Hvað ertu reiðubúinn að borga mér mikið til að fá að horfa á mig sofa hjá eiginkonu minni á meðan hún sefur?“ spyr einn notandi á „ZZZ“ en nýverið var spjallþráðurinn tekinn niður. Ómeðvitaðar, jafnvel árum saman um ofbeldið Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir byrlanir í nánum samböndum of algengar hér á landi. „Við fáum þannig mál og höfum fengið ítrekað til Stígamóta. Um sjö prósent þeirra sem komu til okkar í fyrra komu vegna nauðgana í kjölfar byrlunar. í svona málum þá hefur það komið glöggt í ljós að konur eru ómeðvitaðar um þetta, jafnvel árum saman, um að þeim hafi verið byrlað og þeim nauðgað og teknar myndir og dreift. Þannig að við getum staðfest það að við höfum töluvert meiri áhyggjur af byrlunum í hjónaböndum en þær sem er almennt talað um, byrlanir á börum.“ Um alþjóðlegt samfélag karla sé að ræða og ekki hægt að útiloka að Íslendingar noti slíkar síður. „Það er nú þannig að við lifum í alþjóðlegu samfélagi og það sem gerist erlendis gerist hér líka. Ég get svo sem ekki staðfest að það séu einhverjar myndir af íslenskum konum í þessu neti. Ég get sagt hvað það eru alvarlega afleiðingar af því að það sé tekið upp kynferðislegt efni og því dreift. Þú missir einhvern veginn stjórn á ofbeldinu og það heldur bara áfram.“ Drífa Snædal talskona Stígamóta.Vísir/Vilhelm Mikilvægt sé að vinna gegn þessari þróun og greina hvaða hvatar liggja að baki hjá ofbeldismönnum. „Það er mjög mikilvægt að það komi fram að þú ert þátttakandi í ofbeldinu við það að horfa á svona og deila svona efni, þó þú taki það ekki upp sjálfur,“ segir Drífa og bætir við: „Þetta á svo sem ekki að koma á óvart en gerir það alltaf, hvað ofbeldi gegn konum er útbreitt, hvað það getur verið skipulagt. Líka hvað það geta verið margir sem taka þátt í þessu og styðja hver annan og hvetja áfram í að beita konur ofbeldi.“
Kynbundið ofbeldi Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira