„Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. apríl 2026 15:15 Sigríður Kristinsdóttir er sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu. vísir/einar Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðslu fara vel af stað í húsakynnum sýslumannsins við Hlíðarsmára í Kópavogi. Gott húsnæði með nóg af bílastæðum geri gæfumuninn enda mikilvægt að fólk komist á réttan stað.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fara fram þann 16. maí hófst í gær á 28 stöðum víða um land og í sendiráðum og hjá ræðismönnum erlendis. Alls eru 3156 einstaklingar í framboði sem skipa 178 framboðslista í fimmtíu sveitarfélögum. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðarsmára, segir atkvæðagreiðsluna hafa gengið vel. „Það hefur gengið mjög vel. Þetta fór vel af stað. Við opnuðum klukkan tíu í gær og lokuðum klukkan sex. Það voru 52 sem kusu hjá okkur í gær. Engir erfiðleikar og við erum í mjög góðu húsnæði, með mikið af bílastæðum og allt er vel merkt. Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur.“ Það er opið hjá sýslumanni alla daga til 11. maí, frá tíu til sex fyrir þá sem vilja greiða atkvæði utan kjörfundar. Þó er lokað sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl. Frá 11. til 15. maí er opið frá tíu til níu. Eru margir búnir að leggja leið sína til ykkar í dag í blíðviðrinu? „Nei, við erum búin að taka á móti ellefu manns núna um tvöleytið. Það má búast við því að það verði frekar rólegt hjá okkur í dag, enda er gott veður.“ Er eitthvað meira sem fólk þarf að vita? „Þegar þú kemur til okkar þarftu að vera með persónuskilríki. Rafræna ökuskírteinið í forriti Ísland.is gildir til dæmis.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Sjá meira