Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Freyja Þórisdóttir skrifar 17. apríl 2026 13:59 Frá vinstri: Bjarki Tómas Sigurðsson, Halldór Ríkharðsson, Haukur Freyr Karvelsson og Kjartan Óli Bjarnason. Aðsend Fjórir nemendur í Borgarholtsskóla hófu nýverið sölu á leiknum Flatir Fletir með það að markmiði að fá fleiri ungmenni til að verja tíma saman úti í sumar. Þeim þykir sorglegt að sumarleikir virðist vera að víkja fyrir inniveru og símanotkun. Þeir hafi viljað fanga þá „sígildu tilfinningu að standa úti á íslenskri fjöru á sumrin og fleyta kerlingar, skemmtun sem verður aldrei þreytt“.
Þeir Bjarki Tómas Sigurðsson, Halldór Ríkharðsson, Haukur Freyr Karvelsson og Kjartan Óli Bjarnason keppa í fyrirtækjakeppninni Ungir Frumkvöðlar með fyrirtækinu sem ber sama nafn og leikurinn, eða Flatir Fletir. Leikurinn er að þeirra sögn ætlaður krökkum og ungu fólki en er auk þess tilvalinn leikur til að spila með allri fjölskyldunni. „Við sem vinnum að þessu eigum það allir sameiginlegt að hafa gríðarlegan áhuga á útiveru. Það syrgir okkur þess vegna mjög mikið að krakkar sjáist minna og minna úti á sumrin,“ segir Kjartan Óli og bætir við að þeir hafi skapað leikinn í von um að viðhalda þeirri tilfinningu sem þeir þekkja úr útileikjum í sinni æsku. View this post on Instagram A post shared by Flatir Fletir (@flatirfletir) Leikurinn virkar þannig að keppt er milli tveggja liða og raða bæði liðin flötunum niður á eitt svæði. Síðan skiptast bæði liðin á að reyna að hitta fletina hjá hinu liðinu niður með því að kasta hliðarköstum, sem sagt eins og maður sé að reyna að fleyta kerlingar. Markmiðið með leiknum er að ná flötum andstæðingsins niður á meðan maður forðast að hitta niður sína eigin fleti. Það lið sem hittir alla fleti andstæðingsins niður vinnur. Leikurinn er ekki flóknari en svo. Keppast um ferð til Lettlands Í dag og á morgun, 17. og 18. apríl, fer fram vörumessa í Smáralind þar sem strákarnir kynna leikinn fyrir gestum og gangandi. Hún er haldin sem uppskeruhátíð ungra frumkvöðla á vegum JA Iceland en á vef Smáralindar kemur fram að ríflega sex hundruð nemendur frá átján mismunandi framhaldsskólum muni kynna og selja nýsköpun sína. Sigurteymi keppninnar Ungir frumkvöðlar fær boð á frumkvöðlamessuna Gen-E sem er í ár haldin dagana 7.–10. júlí í borginni Riga í Lettlandi. Greint verður frá úrslitum keppninnar á uppskeruhátíð í Arion banka þann 28. apríl.
Smáralind Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira