Ólympíukóngurinn fjárfestir í skák eins og Haaland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2026 07:02 Erling Braut Haaland og Johannes Hösflot Klæbo eru tvær af stærstu íþróttastjörnum Noregs og heimsins. Getty/Marc Atkins/Daniel Karmann Norska skíðastjarnan Johannes Hösflot Klæbo hefur fjárfest í skákíþróttinni, bæði í Norway Chess og í nýja verkefninu Total Chess World Championship Tour. „
Skák er langtíma og spennandi fjárfesting fyrir mig. Ég hef mikla trú á hugmyndinni og ég sé að ég, ásamt mörgum öðrum, get lagt mitt af mörkum til að skapa verðmæti í breiðri og mjög alþjóðlegri íþrótt,“ sagði Klæbo í yfirlýsingu. Fyrir nokkru gekk knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland einnig til liðs við fjárfestahópinn. Nú hafa bæst við hundrað milljónir norskra króna frá fjölda þekktra fjárfesta, þar á meðal Klæbo. Haaland er auðvitað markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, margfaldur meistari með Manchester City og einn allra besti framherji heims. Klæbo vann sex gullverðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina 2026 og sló um leið metin yfir flest gullverðlaun unnin á einum Vetrarólympíuleikum og flest gullverðlaun á ferlinum sem nokkur íþróttamaður á Vetrarólympíuleikum hefur unnið. Hann er nú kominn með ellefu gullverðlaun en aðeins sundmaðurinn Michael Phelps hefur unnið fleiri Ólympíugull í sögunni. Meðal nýrra fjárfesta í Norway Chess AS eru einnig fyrrverandi íþróttamennirnir Bjørn Maaseide og Thor Hushovd. Norðmenn eru miklir skákáhugamenn en þeir eiga auðvitað stórstjörnuna Magnus Carlsen sem er fimmfaldur heimsmeistari í skák, sexfaldur ríkjandi heimsmeistari í atskák, níufaldur ríkjandi heimsmeistari í hraðskák og ríkjandi heimsmeistari í FIDE Freestyle-skák. Peningarnir verða notaðir til að þróa Total Chess World Championship Tour, sem hefur verið samþykkt af Alþjóðaskáksambandinu FIDE til að minnsta kosti sextán ára. Fyrsta tilraunamótið er áætlað í nóvember 2026. Stofnandi og forstjóri, Kjell Madland, líkir verkefninu við Formúlu 1.„Total Chess Tour má líkja við Formúlu 1-sirkusinn, þar sem valdar heimsborgir fá að halda sín mót, sem verða stórviðburðir í sjálfu sér,“ sagði Madland.
Skák Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Enski boltinn Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Sjá meira