„Maður þarf að gera alla hluti upp“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. apríl 2026 11:00 Séra Jóna hefur gengið í gegnum erfið veikindi undanfarin ár. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir greindist með blóðkrabbamein haustið 2024 og gekkst undir flókna aðgerð í Svíþjóð í mars á síðasta ári, þar sem hún fékk beinmergsgjöf sem varð henni til lífs.
Sindri Sindrason settist niður með Jónu Hrönn og fékk að vita alla söguna í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. „Það var nú eiginlega bara mikið lán að ég hafði fengið sýkingu hér á bringuna og ég fer á heilsugæsluna til að biðja um pensilín. Hjúkrunarfræðingurinn, sem er nákvæm kona og þekkir mig vel, fór og náði í heimilislækninn minn, sem er líka mjög nákvæm kona. Hún sagði bara: heyrðu, þetta lítur ekki nógu vel út, við skulum líka senda þig í blóðprufu.“ Jóna fékk út úr blóðprufunni tveimur dögum síðar. „Hún hringdi í mig og bað mig um að koma til sín. Þar fékk ég að vita að öll blóðgildi lægju niðri og hún var ekki viss hvort það væri afleiðing af pensilíninu eða hvort ég væri alvarlega veik,“ segir Jóna og bætir við að þá hafi ferlið allt farið af stað. Lífsógnandi blóðkrabbi „Ég mætti og þá sagði læknirinn við mig að ég væri sem sagt með blóðkrabbamein sem væri lífsógnandi og ég ætti einn möguleika á lækningu sem væri að fara í stofnfrumumeðferð til Svíþjóðar. Þegar ég kom út uppgötvaði ég að ég gat ekki hringt í manninn minn af því að hann var að jarða í Hallgrímskirkju. Þannig að ég hringdi í systur mína sem hefur tvisvar greinst með krabbamein, Hildi Eir, og sagði henni frá þessu. Af því að hún er búin að fara í gegnum þetta allt,“ segir Jón sem átti þá gott samtal við systur sína. Því næst fór hún í klippingu og litun. „Þá mundi ég líka eftir því að hárgreiðslukona mín til tuttugu ára var nýbúin að missa manninn sinn rúmlega fertugan úr krabbameini og hugsaði, hvar er betra en að vera hjá henni? Og ég fór og ég sagði henni þetta. Hún sagði mér að ég kæmist í gegnum þetta og svo klippti hún mig bara og nostraði við mig. Það hefði ekkert verið betra fyrir mig að vera ein heima.“ Hún segist hafa fengið að heyra frá lækni að um væri að ræða flókinn sjúkdóm og að erfið vinna væri fram undan. „Nú ætla ég að lifa eins og alkóhólisti. Ég ætla að taka einn dag í einu,“ segir Jóna en því næst fór hún út til Svíþjóðar. „Ég var lánsöm og var í sprautumeðferð hér heima sem ég þoldi bara ótrúlega vel. Meðferðin úti var ofboðslega erfið. Ég var frá byrjun mars fram í miðjan maí og ég varð náttúrulega bara eins og gömul sköllótt kona. Ég auðvitað hafði enga orku, en ég naut alveg einstakrar þjónustu og það var stórkostlegt að maðurinn minn gat farið með mér,“ segir Jóna og heldur áfram. „Ég ætla að komast, ég ætla að komast upp þetta fjall. En makinn eða ástvinirnir ganga dalinn. Og í dalnum geturðu horft einmitt upp og niður og til hægri og vinstri. Þú ert að fara miklu víðar og lengra í huga þínum heldur en sá sem er veikur. Það hefur komið svo ótrúlega sterkt til mín núna þegar ég er að gera þessa hluti upp af því maður þarf að gera alla hluti upp og segja: „Hvað hef ég lært?“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem Jóna fer nánar út í veikindin.
Ísland í dag Krabbamein Trúmál Mest lesið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Sjá meira