Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Eiður Þór Árnason skrifar 9. apríl 2026 07:00 Silja Ingólfsdóttir er upplýsingafulltrúi Veitna sem rekur Hlíðarveita við Úthlíð. Veitur - EPA/NEIL HALL Lek vatnslögn var ranglega tengd inn á vatnsveituna við Úthlíð í Bláskógabyggð án vitundar Veitna með þeim afleiðingum að álag jókst á sama tíma og hús voru án vatns. Málið komst upp á páskadagskvöld og vinna Veitur nú að því að yfirfara kerfið.
Vatnsskortur var í sumarhúsabyggðinni í Úthlíð yfir nokkurra daga tímabil í kringum páskana og þurftu einhverjir að flýja svæðið vegna vatnsleysisins. „Þessi lögn var lek og þar bara lak vatn út. Þetta er lögn sem var tengd án okkar vitundar og verið óviljandi tengd inn á vitlaust kerfi,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, í samtali við Vísi. Um sé að ræða gamla lögn og við þetta hafi bær nálægt Úthlið orðið vatnslaus. Tengingin hafi nú verið lagfærð. Silja tekur fram að aðalvandamálið hafi verið lítil úrkoma á svæðinu yfir langt tímabil sem hafi leitt til óvenjulega lágrar stöðu í vatnsbólinu. Leka lögnin hafi þó einnig haft töluverð áhrif og aukið álag á kerfið. Ætli að ráðast í frekari aðgerðir Í kjölfarið á þessu voru aðrar tengingar yfirfarnar og gengið úr skugga um að einungis skráðar tengingar væru í notkun, að sögn Silju. Þá standi til að fara í umfangsmikla lekaleit með aðstoð bergmálstækni. Að lokum á að kanna langtímalausnir til að reyna að koma í veg fyrir frekari vatnsskort í Úthlíð. Þar komi ýmsir hlutir til greina. „Sumt af því er bættur vatnsforði og annað eru betri dælur og slíkt. Það var svo lágur þrýstingur hjá okkur þarna um helgina að vatnið náði ekki upp í efstu dælurnar. Þess vegna var vatnslaust í efstu húsunum.“ Silja segir að þrátt fyrir að fólki hafi fækkað á svæðinu eftir páskana og búið sé að loka fyrir leku tenginguna sé áfram lítið vatn í vatnsbólinu. Úrkoman í janúar og febrúar hafi einungis verið um fjórtán prósent af því sem er á meðalári. Þá hafi úrkoman í nóvember og desember verið minni en helmingur á við meðalár. Í annað skipti Hlíðarveita er lítil vatnsveita sem þjónar frístundabyggðinni í Úthlíð, ferðaþjónustu og nokkrum öðrum viðskiptavinum til viðbótar. Mikið álag var á vatnsveitunni um páskahelgina þar sem mikill fjöldi fólks var á svæðinu. Silja segir að Veitur hafi áður fengið vatn úr vatnsveitu Bláskógarbyggðar þegar vatnsstaðan hefur verið slæm en hún hafi ekki verið aflögufær að þessu sinni þar sem þurrkur hafði einnig áhrif þar. Þetta sé í annað skipti sem slíkur vatnsskortur kemur upp í Úthlíð en síðast hafi það verið í þurrkatíð yfir sumartímann. Langt ferli að sækja vatn Sumarhúsaeigandi í Úthlíð gagnrýndi Veitur fyrir að hafa ekki brugðist fyrr við stöðunni og bætt vatnsbúskapinn. Silja segir ýmsa möguleika til skoðunar en það sé ekki alltaf einfalt mál að sækja vatn. „Það eru landeigendur og það tekur alltaf svolítið langan tíma að gera rannsóknir og annað slíkt þannig að það sé ekki verið að bora í eitthvað viðkvæmt svæði eða annað slíkt.“
Bláskógabyggð Vatnsból Vatn Tengdar fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Sumarhúsaeigandi í Úthlíð í Bláskógabyggð segir vatnsskort hafa verið viðvarandi vandamál á svæðinu um árabil og gagnrýnir Veitur harðlega fyrir að hafa ekki gripið til frekari ráðstafana. „Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum og bregðast við vandamálinu er því algert.“ 5. apríl 2026 23:55 „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Vatnslaust hefur verið síðustu daga í sumarhúsabyggð í Úthlíð en vatnsbólið er nánast tómt. Einhverjir hafa þurft að flýja vegna vatnsleysisins. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir sumarhúsaeigendur hafa fengið tilkynningu á fimmtudag en hún mögulega farið fram hjá mörgum. 4. apríl 2026 17:10 Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira
Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Sumarhúsaeigandi í Úthlíð í Bláskógabyggð segir vatnsskort hafa verið viðvarandi vandamál á svæðinu um árabil og gagnrýnir Veitur harðlega fyrir að hafa ekki gripið til frekari ráðstafana. „Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum og bregðast við vandamálinu er því algert.“ 5. apríl 2026 23:55
„Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Vatnslaust hefur verið síðustu daga í sumarhúsabyggð í Úthlíð en vatnsbólið er nánast tómt. Einhverjir hafa þurft að flýja vegna vatnsleysisins. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir sumarhúsaeigendur hafa fengið tilkynningu á fimmtudag en hún mögulega farið fram hjá mörgum. 4. apríl 2026 17:10