Kylfingar hugsa til Tigers Woods á Masters-mótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 07:33 Tiger Woods verður hvergi nálægt þegar Mastersmótið fer fram í þessari viku en er væntanlega staddur á meðferðarstofnum í Sviss. Getty/Adam Glanzman Mastersmótið í golfi hefst á fimmtudaginn en þar verður enginn Tiger Woods meðal keppenda eins og margir voru að vonast til fyrir nokkrum vikum. Woods er samt í huga margra kylfinga eftir vandræði sín síðustu vikur.
Kylfingar á mótinu segjast líka styðja við bakið á fimmtánfalda risameistaranum eftir að hann fór að eigin sögn í meðferð í kjölfar handtöku fyrir ölvunarakstur í Flórída þann 27. mars síðastliðinn. Hann er bara mannlegur eins og allir aðrir „Ég horfi á þetta og hugsa: ‚Hann er bara mannlegur eins og allir aðrir og við eigum öll í erfiðleikum,‘“ sagði Jason Day á mánudag. „Þetta er óheppilegt. Það eina sem ég skil ekki er að það er svolítið eigingjarnt af honum að keyra og stofna öðrum í hættu,“ sagði Day. Hinn fimmtugi Woods neitaði sök í ákæru um ölvunarakstur með eignatjóni og fyrir að neita að gangast undir löglegt próf. Woods var einnig ákærður fyrir glannaskap við akstur, sem er umferðarlagabrot, eftir að hann sagði lögreglu að hann hefði verið að horfa á símann sinn við aksturinn. Jeppi hans rakst utan í kerru sem var dregin af vörubíl nálægt heimili hans í Hobe Sound í Flórída. Bíllinn hans valt en Tiger slapp ómeiddur. Heldur að hann geti gert nánast hvað sem er „Þegar þú ert kylfingur eins og hann var og með jafn sterkan vilja, þá heldur hann að hann geti gert nánast hvað sem er og það er líklega ástæðan fyrir því að hann er að keyra undir áhrifum,“ sagði Day. Einkaþota Woods lenti í Sviss á föstudag, sem leiddi til vangaveltna um að hann gæti verið að fara inn á meðferðarstöð þar. Dómari hafði tveimur dögum áður samþykkt beiðni Woods um að ferðast utan Bandaríkjanna og fara í alhliða meðferð á stofnun. „Þetta sýnir bara mannlega þáttinn og mannlegu hliðina á einhverjum sem glímir við einhvers konar fíkn,“ sagði Day. „Hann er ekki ónæmur fyrir því bara af því að hann getur slegið golfbolta mjög vel. Hann hefur farið í 25 til 30 aðgerðir og þegar þú gengur í gegnum svo margar aðgerðir er sársaukafullt að koma úr þeim,“ sagði Day. Woods, sem er fimmfaldur Masters-meistari, sagði lögreglumanni eftir slysið 27. mars að hann hefði farið í sjö bakaðgerðir og yfir tuttugu aðgerðir á hægri fæti og að ökklinn á honum hefði stirðnað þegar hann gengi. „Hann er hetjan mín“ „Hann er hetjan mín,“ sagði Day. „Hann var hetjan mín þegar ég var að alast upp. Ástæðan fyrir því að ég spila golf er þetta mót [Masters-mótið] og Tiger. Það er erfitt að sjá hann ganga í gegnum það sem hann er að ganga í gegnum, sérstaklega undir smásjánni. Það hlýtur að vera erfitt að vera sá sem hann er og láta alla horfa niður á sig,“ sagði Day. „Sumir vilja að honum mistakist. Sumir vilja augljóslega að honum takist vel upp. Það er mjög erfitt fyrir mig að horfa á hann ganga í gegnum þetta og ég veit að hann er að fá hjálp núna, sem er gott. Ég vona bara að hann komi sterkari út úr þessu,“ sagði Day. Þrefaldi Masters-meistarinn Phil Mickelson er heldur ekki með á mótinu í ár. Hann tilkynnti í síðustu viku að hann yrði frá keppni um óákveðinn tíma á meðan fjölskylda hans heldur áfram að „takast á við persónulegt heilsumál.“ Þetta er í fyrsta sinn síðan 1994 sem hvorki Mickelson né Woods eru meðal keppenda á Masters-mótinu. Finnst það skaða golfíþróttina „Verum hreinskilin, án Tigers Woods og Phils Mickelson á mótum í golfi, þegar þeir báðir stíga til hliðar, þá finnst mér það skaða golfíþróttina,“ sagði Patrick Reed, Masters-meistari frá 2018. „En á sama tíma viljum við að þeir komi aftur heilir heilsu og tilbúnir í slaginn.“ Tvívegis Masters-meistarinn Bubba Watson varð vitni að síðasta Masters-sigri Woods árið 2019. Watson sagðist hafa hvatt aðra fyrrverandi meistara til að fara á átjándu flötina til að óska honum til hamingju. „Mér gæti ekki verið meira sama um golfið hans Tigers. Ég sagði honum frá fyrsta degi sem við byrjuðum að hanga saman, einhvern tímann í kringum 2006 eða 2007, að ég styddi hann sem manneskju. Gleymdu golfinu hans, mér gæti ekki verið meira sama um golfið hans,“ sagði Watson. Ég styð hann alltaf „Ég finn til með öllum sem glíma við eitthvað, því ég hef gengið í gegnum mikið af andlegum erfiðleikum. Svo já, ég styð hann alltaf. Ekkert nema ást til hans, og vonandi kemur hann sterkari til baka,“ sagði Watson. Mastersmótið verður sýnt beint á Sýn Sport. Á morgun verður sýnt beint frá Par 3-keppninni á SÝN Sport 2 en áður verður einnig upphitunarþáttur fyrir mótið. Fyrsti keppnisdagur er síðan á fimmtudaginn og hefst útsending klukkan 17.00 á SÝN Sport.
Golf Masters-mótið Mest lesið Hnéskel Franks Arons brotnaði Körfubolti „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Íslenski boltinn Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu Sport Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Íslenski boltinn Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Fleiri fréttir Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Sjá meira