Chelsea setti nýtt met í taprekstri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 13:24 Enzo Fernandez og félagar í Chelsea horfa upp á félagið sitt rekið í miklum taprekstri. Getty/Ryan Pierse Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea skilaði meira en 43 milljarða króna tapi fyrir skatt á síðasta tímabili. Það er nýtt met í taprekstri ensku úrvalsdeildarinnar.
Tapið upp á 262 milljónir punda fyrir tímabilið 2024–25 er meira en 179,5 milljóna punda tap Manchester City árið 2011. Þetta gerist þrátt fyrir að Chelsea hafi aflað 490,9 milljóna punda í tekjur á þessu tímabili, sem félagið segir vera næsthæstu heildartekjur í sögu þess. Á tímabilinu 2024–25 vann Chelsea Sambandsdeild Evrópu og heimsmeistarakeppni félagsliða og endaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 📉 Chelsea made a Premier League-record pre-tax loss of £262.4 million for the year ending June 30, 2025, the club has revealed.#beINPL #CFChttps://t.co/OpwA2LPiYC— beIN SPORTS (@beINSPORTS_EN) April 1, 2026 Félagið heldur því fram að það fylgi enn fjármálareglum eins og reglum um hagnað og sjálfbærni sem heimila 105 milljóna punda tap yfir þriggja ára tímabil. Chelsea hefur eytt meira en einum milljarði punda í leikmenn síðan BlueCo tók við félaginu árið 2022 og hefur samið við fjölda yngri leikmanna til langs tíma. UEFA sektaði félagið um 26,7 milljónir punda í byrjun tímabils fyrir brot á reglum um kostnaðarhlutfall leikmannahóps og fylgist einnig með félaginu yfir þriggja ára tímabil. Heimildarmenn BBC Sport hafa greint frá því að tilkynnt tap innihaldi sektir – þar á meðal 10,75 milljóna punda sekt frá ensku úrvalsdeildinni vegna umboðslaunagreiðslna í eignartíð Roman Abramovich – auk afskrifta í bókhaldi fyrir þekkta leikmenn eins og Raheem Sterling, sem var leystur undan samningi, og Mykhailo Mudryk, sem er til rannsóknar vegna fallins lyfjaprófs. Chelsea telur að tekjur muni ná meti í næsta ársreikningi, með 85 milljónum punda aukalega fyrir sigur í heimsmeistarakeppni félagsliða, auk um 80 milljóna punda í sjónvarpstekjur frá Meistaradeildinni. Chelsea greindi einnig frá því að kvennalið félagsins tapaði 17,1 milljón punda á tímabilinu 2024–25, en tekjur námu 21,3 milljónum punda.
Enska augnablikið Chelsea FC Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Sjá meira