„Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 09:32 Tiger Woods var skömmustulegur þegar honum var ekið heim úr fangelsinu eftir að hann var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum á föstudaginn var. getty/Joe Raedle Álitsgjafinn Stephen A. Smith segir að fólk verði að hætta meðvirkninni með Tiger Woods og biðlar til hans að hætta að aka undir áhrifum. Hætt sé við að það endi illa.
Tiger lenti í bílslysi í Flórída á föstudaginn. Hann velti þá bifreið sinni er hann reyndi að taka fram úr annarri. Grunur leikur á að Tiger hafi ekið undir áhrifum en það er ekki í fyrsta skipti sem það gerist. Smith segir að Tiger verði að horfast í augu við vandamálið sem hann glími við. „Ég er ekki að ýkja og ég er ekki grimmur þegar ég segi þetta: Tiger Woods er fíkill. Ég hef enga sönnun fyrir þessu fyrir utan atvikin sem hann hefur lent í. En byggt á þeim er nokkuð öruggt að segja að Tiger Woods sé fíkill,“ sagði Smith í þætti sínum. „Dömur mínar og herrar, hann lenti í bílslysi í Kaliforníu 2021 þegar hann dó næstum því. Hann lenti í bílslysi 2017 þegar hann var sofandi á rauðu ljósi ef ég man rétt. Hann glímir við vandamál og það er kominn tími til að segja það.“ Smith segir að rífa þurfi í handbremsuna áður en illa fer. „Samúðin með Tiger Woods er að þrotum komin. Hann er fjáður og verður aldrei fátækur. Hann er ágætlega settur. En ímynd hans hefur beðið hnekki,“ sagði Smith og rifjaði upp framhjáhaldsskandal Tigers sem var á allra vörum 2009. Hættu að setjast undir stýri „Bróðir, þú glímir við eiturlyfjavandamál og ég held, þrátt fyrir að hafa engar sannanir fyrir því, að þetta séu verkjalyf. Ég skil það. Það sem ég skil ekki er þessi tilhneiging til að setjast undir stýri. Þú ert milljarðamæringur. Þú hefur efni á akstursþjónustu. Við erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern,“ sagði Smith. Hann segir að Tiger sé stórkostlegur íþróttamaður en spurði hversu oft fólk ætti að afsaka hann þegar hann ekur undir áhrifum. „Það er ekki til of mikils mælst að einhver segi við Tiger Woods: Hættu að setjast undir stýri!“ sagði Smith. Tiger hefur glímt við erfið og langvarandi meiðsli og lítið keppt síðustu árin. Í síðustu viku sneri hann aftur á golfvöllinn þegar hann keppti í úrslitum TGL-deildarinnar. Eftir leikinn, sem lið Tigers, Jupiter Links Golf Club, tapaði, 9-2 fyrir Los Angeles Golf Club, sagðist hann ekki útiloka að taka þátt á Masters sem hefst 9. apríl næstkomandi. En eftir vendingar síðustu daga verður að teljast ólíklegra en ekki að Tiger mæti til leiks á Masters, fyrsta risamóti ársins.
Golf Bílslys Tigers Woods Tengdar fréttir Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. 30. mars 2026 19:46 Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída í dag. 27. mars 2026 21:34 Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt. 27. mars 2026 19:47 Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Sjá meira
Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. 30. mars 2026 19:46
Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída í dag. 27. mars 2026 21:34
Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt. 27. mars 2026 19:47