Golf

Fjórða bíl­slysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bílinn valt en Tiger Woods slapp ómeiddur. Hann var tekinn í gæsluvarðhald, grunaður um akstur undir áhrifum lyfja, en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu. 
Bílinn valt en Tiger Woods slapp ómeiddur. Hann var tekinn í gæsluvarðhald, grunaður um akstur undir áhrifum lyfja, en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu.  getty

Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn.

Woods er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum lyfja þegar hann reyndi að taka fram úr öðrum ökumanni í Flórída í gær, með þeim afleiðingum að bílarnir rákust saman.

Sjá einnig: Tiger Woods lenti í bílslysi 

Bíllinn sem Woods keyrði í gærkvöldi valt og hann þurfti að skríða út um hurðina farþegamegin en slapp alveg ómeiddur að sögn lögreglu. Hann var þá tekinn í gæsluvarðhald en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu.

Tiger Woods var ekið burt af lögreglustöðinni í gærkvöldi. Joe Raedle/Getty Images

Þetta var í fjórða sinn sem Tiger Woods veldur bílslysi en hin þrjú slysin hafa sett mikið mark á líf hans og feril sem atvinnumanns í golfi.

2009: Tiger klessir á brunahana

Nóttina eftir Þakkagjörðarhátíðina í Bandaríkjunum árið 2009 hrundi líf Tiger Woods algjörlega. Hann hafði verið að lifa tvöföldu lífi og ríghaldið framhjá eiginkonu sinni en allt komst þetta upp eftir bílslys þar sem Woods klessti á brunahana.

Woods var á þeim tíma einn allra vinsælasti íþróttamaður heims, eftir að hafa unnið 14 risamót í golfi frá 1997 til 2008. Hann slasaðist alvarlega í slysinu og Elin Woods skildi við hann. 

Tiger tók sér langa pásu frá golfi og hefur aðeins unnið eitt risamót síðan, Masters 2019.

2017: Tiger sofnar undir stýri

Þann 29. maí árið 2017 lenti Tiger Woods í öðru alvarlegu bílslysi, þegar hann ók undir áhrifum kvíðalyfja, svefnlyfja og kannabisefna. Woods hafði orðið háður lyfjunum eftir bakaðgerð en leitaði sér hjálpar eftir handtökuna og fór í meðferð.

2021: Tiger í lífshættu

Þann 23. febrúar árið 2021 var Tiger Woods heppinn að sleppa lifandi úr slysi eftir að hafa ekið á rúmlega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. Bíllinn valt af veginum og björgunaraðilar þurftu að klippa Woods út úr bílnum sem gjöreyðilagðist.

Rannsókn leiddi síðar í ljós að Woods hefði óvart stigið á bensíngjöfina þegar hann ætlaði að stíga á bremsupedalann. Tómt lyfjaglas fannst í bílnum sem Woods keyrði en ekkert óeðlilegt fannst í þvagsýni.

Woods slasaðist alvarlega og gekkst undir nokkrar aðgerðir, eftir að hafa lent í opnu beinbroti á fætinum og mölbrotið hinn ökklann.

Hefur glímt við mikil eftirköst

Öll þessi slys og áverkarnir sem Tiger Woods hlaut í þeim hafa haft mikil áhrif á golfferilinn. Síðan hann lenti í slysinu árið 2021 hefur hann verið sárverkjaður í þau fáu skipti sem hann hefur getað spilað.

Woods sneri aftur til keppni á Masters-mótinu árið 2022 og náði í gegnum niðurskurð en hafnaði í 47. sætinu.

Síðar sama ár dró hann sig úr keppni á PGA-meistaramótinu og sömu sögu var að segja af Masters-mótinu árið 2023. Hann keppti síðast á The Open árið 2024 en síðan þá hefur hann gengist undir aðgerð í baki og slitið hásin.

Fyrr í vikunni sneri Woods loks aftur á golfvöllinn eftir rúmlega árs fjarveru. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg því hinn fimmtugi Tiger tapaði stórt.

Nú á eftir að koma í ljós hvort hann stefni enn á þátttöku á Masters-mótinu eftir tvær vikur en Woods er allavega ekki slasaður eftir bílslysið í gærkvöldi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×