Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. mars 2026 19:01 Jenný Kristín Valberg er teymisstýra í Bjarkarhlíð. Vísir/Ívar Fannar Fjörutíu konur leituðu til Bjarkarhlíðar á síðasta ári eftir að hafa verið beittar kynferðisofbeldi í sérstaklega hættulegum aðstæðum. Teymisstýra segir málum sem þessum hafa fjölgað og gerendur ganga sífellt lengra sem sé áhyggjuefni.
Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot gegn konu sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Málið hefur vakið nokkra athygli en talið er að gerendur hafi verið fleiri en einn. Lögreglan á Akureyri hefur lítið viljað segja um málið og sagt það viðkvæmt en enginn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna þess. DV hefur fullyrt að um hrottalega árás hafi verið að ræða þar sem konunni hafi verið misþyrmt klukkustundum saman. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð segir tölur úr nýrri ársskýrslu Bjarkarhlíðar, sem gefin verður úr á næstunni, sýna að alvarlegum kynferðisbrotamálum hafi fjölgað. Fjörutíu konur hafi leitað til Bjarkarhlíðar á síðasta ári eftir að hafa verði beittar kynferðisofbeldi í sérstaklega hættulegum aðstæðum. Það séu fleiri en árið áður þegar þær voru þrjátíu og fimm. „Við erum að sjá mikið markaleysi og kvenfyrirlitningu og að brotin eru að verða alvarlegri líka,“ segir hún. Það sé áhyggjuefni að gerendur gangi sífellt lengra en þeir beiti sér oft til að reyna að koma í veg fyrir að málin séu kærð. „Það er verið að hóta, það er verið að ógna og það eru hótanir bæði mikið stafrænt vegna þess að það er mikið af þessum hótunum, ógnunum sem fara fram í gegnum samfélagsmiðla. Það er líka bara þessi eltihrellahegðun að einstaklingar eru að birtast, eru að koma þar sem þú ert kannski vanur að vera, á vinnustað, í skóla, í líkamsræktarstöðinni og annað. Svo er auðvitað líka hérna alls konar hótanir og við höfum fengið dæmi, nokkur dæmi, um það að það er verið að hóta líka þriðja aðila, að senda einhvern á viðkomandi til þess að meiða eða ógna.“ Mikilvægt sé að þolendur leiti sér aðstoðar. „Það er rosalega mikilvægt að konur fái stuðning, ráðgjöf og alla þá þjónustu sem þær geta fengið þegar þær verða fyrir öllum brotum og ekki síst svona alvarlegum brotum,“ segir Jenný.
Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira