Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. mars 2026 09:30 Alphonse Areola grípur vítaspyrnu Dangos Ouattara í leik West Ham United og Brentford í gær. getty/John Walton Keith Andrews, knattspyrnustjóri Brentford, kom leikmanni liðsins, Dango Ouattara, til varnar eftir neyðarlegt klúður hans í vítaspyrnukeppninni gegn West Ham United í sextán liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær.
Úrslit leiks West Ham og Brentford réðust í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var 2-2 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Ouattara tók aðra spyrnu Brentford í vítakeppninni. Hann ákvað að reyna svokallað Panenka-víti og vippa boltanum laust á mitt markið. Það tókst þó ekki betur en svo að Alphonse Areola, markvörður West Ham, stóð bara kyrr og greip boltann. Outtara var eina leikmanninum sem brást bogalistin í vítakeppninni sem West Ham vann, 5-3. Andrews stóð þétt við bakið á Ouattara í viðtali eftir leikinn á Lundúnaleikvanginum. „Það er auðveldara að sleppa því að taka víti en að taka víti. Ég held að það ætti aldrei að dæma neinn. Í gegnum tíðina höfum við séð leikmenn vera ofsótta og hafða að háði og spotti fyrir að klúðra vítum á stærsta sviðinu og mér finnst það ógeðslegt,“ sagði Andrews. „Hann [Ouattara] æfir svona víti oft og nýtur míns stuðnings og frá öllum hlutaðeigandi.“ Ridiculing penalty misses is "disgusting", says Keith Andrews. A missed Panenka penalty by Dango Ouattara cost Brentford a place in the FA Cup quarter-finals. pic.twitter.com/YVSBHdvK3X— Match of the Day (@BBCMOTD) March 10, 2026 Brentford keypti Ouattara frá Bournemouth síðasta sumar. Hann hefur leikið 27 leiki með Brentford í öllum keppnum á þessu tímabili og skorað fimm mörk, öll í ensku úrvalsdeildinni. Hákon Rafn Valdimarsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Brentford í gær. Liðið er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur þess er gegn Wolves á heimavelli næsta mánudag.
Enski boltinn Brentford FC Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Sjá meira