Formúla 1

Hamilton bjart­sýnn á að Ferrari geti orðið meistari

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewis Hamilton á enn eftir að komast á verðlaunapall sem liðsmaður Ferrari.
Lewis Hamilton á enn eftir að komast á verðlaunapall sem liðsmaður Ferrari. getty/Anni Graf

Eftir fyrstu keppni tímabilsins í Formúlu 1 er Lewis Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti barist við Mercedes um heimsmeistaratitilinn.

George Russell, ökumaður Mercedes, vann Ástralíukappaksturinn í gær. Samherji hans, Kimi Antonelli, varð annar og Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Hamilton enduðu í 3. og 4. sæti.

Þrátt fyrir að Ferrari hafi ekki náð að fylgja eftir góðri byrjun í keppni gærdagsins og setja pressu á Mercedes kveðst Hamilton fullviss um að liðið geti farið alla leið í ár.

„Liðið gerði frábæra hluti heilt yfir. Það var margt jákvætt. Nokkrir hringir í viðbót og ég hefði náð Charles svo ég veit að við munum berjast um að komast á verðlaunapall,“ sagði Hamilton eftir kappaksturinn í gær.

„Við erum ekki jafn fljótir og Mercedes en við erum í baráttu. Okkar bíður mikil vinna að ná þeim en það er ekki ómögulegt,“ bætti enski ökuþórinn við.

Ferrari byrjaði keppnina í gær vel en stjórnendur liðsins sjá væntanlega eftir því að hafa ekki tekið pittstopp þegar öryggisbíllinn kom út á braut snemma í keppninni. Ferrari var með forystuna en Mercedes seig svo fram úr eftir að Ferrari gerði dekkjaskipti og Russell og Antonelli komu fyrstir í mark.

Hamilton gekk í raðir Ferrari frá Mercedes fyrir síðasta tímabil. Illa gekk hjá heimsmeistaranum sjöfalda í fyrra og hann sagði að tímabilið 2025 hefði verið martröð líkast. Hann komst til að mynda aldrei á verðlaunapall, í fyrsta sinn á ferlinum. 

Hljóðið var betra í Hamilton í aðdraganda þessa tímabils og ekki minnkaði bjartsýnin eftir frammistöðu Ferrari í Ástralíu.

„Mér líður frábærlega. Við náðum 3. og 4. sæti en á endanum voru Mercedes hraðari en við,“ sagði Hamilton.

Önnur keppni tímabilsins fer fram í Sjanghaí um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×