Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn Smári Jökull Jónsson skrifar 7. mars 2026 15:01 Sleðahundur sem tekur þátt í keppninni á Vetrarhátíð við Mývatn. Vísir/Regina Wegmann Vetrarhátíð stendur yfir við Mývatn en á hátíðinni eru stundaðar fjölbreyttar vetraríþróttir úti í náttúrunni, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Meðal annars er keppt í hundasleðakeppni og hægt að keyra Gokart bíla á ís.
Um 60 viðburðir eru haldnir á þeim tíu dögum sem hátíðin stendur yfir en hún hófst um síðustu helgi. Að sögn Huldu Maríu Þorláksdóttur, verkefnastjóra hátíðarinnar, hefur veðrið aðeins sett strik í reikninginn. „Þessir stærstu viðburðir eru hestakeppnin sem var um síðustu helgi þar sem keppt var í tölti á ís og síðan er hundasleðakeppni sem var í gær og verður svo aftur á morgun. Henni var frestað í dag vegna veðurs til morgundagsins.“ Keppt í hundasleðakappi Á fimmtudagskvöld fóru fram vel sóttir tónleikar og þá er hundasleðakeppnin vinsæl. „Þetta er sem sagt Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands og fer þannig fram að keppt er í mismunandi flokkum, bæði vegalengdum og eftir því hversu marga hunda þú ert með. Síðan er fólk bæði að láta hundana sem sagt draga sig á gönguskíðum og á sleðum.“ Vetrarhátíð við Mývatn lýkur á morgunVísir/Regina Wegmann Keppt er í barna- og fullorðinsflokkum og ýmsar tegundur hunda sem taka þátt og um síðustu helgi var haldið námskeið fyrir hundaeigendur. „Þá var verið að kenna fólki hvernig þú getur bara nýtt heimilishundinn þinn í að draga þig áfram á gönguskíðum.“ Einstakt tækifæri fyrir Gokart aðdáendur Mest sé um stærri hunda að ræða eins og Husky en einnig minni hunda. „Ég veit til dæmis að það er ein sem fór á námskeiðið og hún á bara frekar lítinn hund. Það gekk svo vel hjá þeim á námskeiðinu að hún skráði sig til leiks og þau eru að fara að keppa á morgun með sinn litla krúttlega heimilishund.“ Á Stakhólstjörn er hægt að keyra Gokart bíla sem Hulda segir mikla upplifun. „Hann sagði mér, sá sem sér um það að það eru sennilega ekki nema á átta stöðum í heiminum sem er hægt að fara í Gokart á ís. Þannig að það er tækifæri sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.“
Hundar Þingeyjarsveit Vetrarhátíð Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira