Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Aron Guðmundsson skrifar 5. mars 2026 13:01 Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin Vísir/Getty Tvöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Fernando Alonso sem er ökuþór Aston Martin, treystir sér ekki til þess að aka meira en tuttugu og fimm hringi í bíl liðsins í fyrstu keppni tímabilsins um helgina af ótta við að hljóta varanlegan taugaskaða.
Frá þessu greindi liðsstjóri Aston Martin liðsins, Adrian Newey, á blaðamannafundi í gær. Aston Martin liðið hefur verið í alls konar basli í aðdraganda komandi tímabils sem er það fyrsta eftir meiriháttar reglubreytingarí mótaröðinni. Tímabilið er einnig það fyrsta í samstarfi Aston Martin við vélaframleiðandann Honda. Óhætt er að segja að það samstarf hafi byrjað illa því lítið sem ekkert hefur gengið upp fyrir fyrstu keppnishelgina í Ástralíu um komandi helgi. Bíll Aston Martin á brautinni í Barein fyrir komandi tímabilVísir/Getty Tvöfaldi heimsmeistarinn Fernando Alonso og Kanadamaðurinn Lance Stroll eru ökuþórar liðsins. „Alsonso er á þeirri skoðun að hann muni ekki geta ekið meira en 25 hringi í röð í þessum bíl án þess að eiga hættu á að hljóta varanlegan taugaskaða í höndunum. Stroll er á sama máli en segist aðeins munu geta ekið fimmtán hringi,“ sagði Adrian Newey liðsstjóri á blaðamannafundi í gær. Þar af leiðandi verður að teljast ansi ólíklegt að bílar Aston Martin muni klára fyrstu keppni tímabilsins í Albert Park á sunnudaginn. Það var í prófunum bílsins í Barein fyrir tímabilið sem óvæntur titringur fór að gera vart um sig í bílnum á meðan að honum var ekið um brautina þar. Þar af leiðandi tókst Aston Martin ekki að uppfylla þau markmið sem liðið hafði sett sér fyrir þær prófanir. Unnið hafi verið að úrbótum sem er þó ekki víst að muni skila sér vel og að fullu í keppni helgarinnar. Newey, sem nú er liðsstjóri Aston Martin liðsins, er af mörgum talinn einn besti bílahönnuður Formúlu 1 mótaraðarinnar frá upphafi og hefur unnið fjöldan allan af heimsmeistaratitlum og er heilinn á bakvið magnaða sigurgöngu Red Bull liðsins á sínum tíma. Hann á nú í fullu fangi með að gera bíl Aston Martin keppnishæfan en hefur fulla trú á að það takist. Eins og að sitja í rafmagnsstól Ökuþórar liðsins lýstu reynslu sinni af því að keyra honum í viðtölum í gær. „Þetta er eins og maður sitji í rafmagnsstól. Þetta er mjög óþægilegur titringur sem er hvorki góður fyrir vélina í bílnum né manneskjuna sem ekur bílnum,“ sagði Lance Stroll og Alonso hafði svipaða sögu að segja: „Maður finnur fyrir doða í fingrum og fótum,“ sagði Alonso og reyndi síðan að slá jákvæðari tón í annars þessari ömurlegu sögu Aston Martin. „Ég vonast til þess að geta klárað keppnina. Það er satt að í prófunum í Barein og Barcelona fundum við fyrir óvenjulegum titringi í bílnum frá vélinni. Ég tel að vandamálið þar sé fundið. Vonandi verður tilfinningin betri komandi inn í fyrstu æfingar keppnishelgarinnar.“ Fyrsta keppnishelgi Formúlu 1 tímabilsins fer fram í Albert Park í Melbourne um komandi helgi. Fyrstu æfingar eru á föstudaginn, tímataka á laugardag og sjálf keppnin á sunnudaginn. Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi. Dagskráin í Formúlu 1 þessa vikuna: 5. mars 1:30 Æfing 1 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Æfing 2 (Sýn Sport Viaplay) 6. mars 1:30 Æfing 3 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Tímataka (Sýn Sport Viaplay) 7. mars 3:30 Kappakstur (Sýn Sport Viaplay)
Akstursíþróttir Mest lesið Fékk stöngina í sig í miðju hlaupi Sport Íþróttamaður ársins missti meðvitund á sjúkrahúsi Sport Íslendingar í vanda: Miðasölufíaskó endurtekur sig fyrir HM í handbolta Sport Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ Handbolti „Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar“ Fótbolti „Er eiginlega bara enn þá að meðtaka þetta“ Sport Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Enski boltinn Glódís spilar tímamótaleik á Old Trafford: „Þetta verður mjög sérstakt kvöld“ Fótbolti Skellti á Zlatan og hélt einhver væri að gera símaat Fótbolti Extraleikarnir: Aðeins eitt stig á milli Nablans og Tomma í æsispennandi keilukeppni Sport Fleiri fréttir Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðsstjóra Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Russell sakar Ferrari um eigingirni Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira