„Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2026 14:08 Þór Sigurgeirsson játaði á sig það, eins og ekkert væri, að hann hafi fengið 90 þúsund króna pútter úr nytjagámi í Sorpu. vísir/vilhelm Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, var sérstakur gestur í golfhlaðvarpinu Seinni níu. Þar var farið yfir víðan völl en Þór er með 22 í forgjöf og liðtækur kylfingur. Ekki síst er það vegna þess að hann er með rándýran pútter í höndum sem hann nappaði úr nytjagámi í Sorpu.
Reglur kveða skýrt á um að þaðan er óheimilt að hafa með sér muni en Þór vildi nú ekki meina að þetta væri mikill glæpur. „Ég pútta eins og engill í dag og viljið þið vita ástæðuna?“ spurði Þór. Jú, þeir Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson, umsjónarmenn Seinni níu, fúlsuðu ekki við góðri sögu og bæjarstjórinn sagði þeim af því hvernig hann fékk nýjan Odyssey-pútter í hendurnar. Þór vildi meina að þetta hefði með einhvers konar tengingu að handan að gera. „Ég fór fyrir konuna í Sorpu, í nytjagám sem þar er. Ég fór með eitthvað dót þangað og þar sé ég golfsett. Hvað er þetta golfsett að gera hér? spurði ég sjálfan mig. Upp úr stóð svona hetta og Odyssey stóð á henni. Ég ríf þessa hettu upp og þá er þar glænýr Odyssey-pútter. Ég horfi í kringum mig og hendi þessu inn í bíl. Þetta er pútterinn minn í dag. Hann kostar 90 þúsund í Golfskálanum,“ sagði Þór. Logi minnti Þór á að hann væri bæjarstjóri og að hann hefði verið að viðurkenna á sig þjófnað? „Þetta var ekki þjófnaður. Ég var búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út úr honum,“ svaraði Þór að bragði. „Er ekki Seltjarnarnes einn af eigendum Sorpu?“ spurði Jón Júlíus þá og Þór svaraði því játandi. Sagan væri bara svo góð og auk þess sönn.
Golf Seltjarnarnes Sorpa Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira