Icewear Garn opnar í Kringlunni Icewear Garn 27. febrúar 2026 13:50 Icewear Garn opnaði nýlega fyrstu sérhæfðu garnverslunina í Kringlunni. Fjölmennt opnunarpartý var haldið í gær fimmudag og þar mættu m.a. Kristín Örnólfsdóttir (t.v.) hönnuður og starfsmaður og Áróra Hallsdóttir sem einnig er starfsmaður. Icewear Garn hefur opnað nýja verslun á 2. hæð í Kringlunni. Þetta er fyrsta sérhæfða garnverslunin í Kringlunni og markar nýjan og ferskan kafla í heimi hannyrða í verslunarmiðstöðinni.
Verslunin býður upp á mikið úrval af garni frá Icewear Garn, Knitting for Olive, Lana Grossa og Ístex, auk fjölbreytts úrvals af prjónum, fylgihlutum, bókum og íslenskum uppskriftum. Sérstök áhersla er lögð á falleg sýnishorn af peysum og öðrum prjónaflíkum sem veita innblástur og gera viðskiptavinum auðvelt fyrir að velja sér verkefni og kaupa allt sem til þarf á einum stað. Frá vinstri eru Guðlaug Kristjánsdóttir hönnuður, Kristín Örnólfsdóttir hönnuður og starfsmaður, Alma Ragnarsdóttir verslunarstjóri og Valgerður Hildibrandsdóttir starfsmaður. Meðal nýjunga í úrvalinu er fjölbreytt glimmergarn, garn fyrir pelsagerð, krullugarn og mikið litaúrval af mohair-silki. Einnig verður boðið upp á handprjónaðar klassískar ullarpeysur úr íslenskri og merino blandaðri ull, auk mohair-peysa. Verslunin er hugsuð með það í huga að höfða til byrjenda jafnt sem lengra komna og lögð er rík áhersla á persónulega ráðgjöf. Áhugi á prjóni hefur aukist verulega undanfarin ár, sérstaklega í kjölfar Covid-tímabilsins, og bæði vinkonuhópar og prjónaklúbbar hafa gert það að venju að hittast, velja sér uppskriftir og prjóna saman. Kristjana Rut (t.v.) prjónari og viðskiptavinur og Áróra Hallsdóttir starfsmaður rýna í prjónauppskriftir. Til hægri er Kristín Örnólfsdóttir hönnuður og starfsmaður. Fjölmennt opnunarpartý og tilboð Opnunarpartý var haldið fimmtudaginn 26. febrúar og voru greinilega margir spenntir yfir þessari nýju verslun en það var fullt út úr dyrum og stemmningin mjög góð. Þar mættu meðal annars gestahönnuðirnir Guðlaug Kristjánsdóttir, Herdís Gísladóttir og Kristín Örnólfsdóttir sem kynntu hönnun sína. Viðskiptavinir fengu þar tækifæri til að kynna sér flíkur og uppskriftir beint frá hönnuðum. Opnunartilboð er í gildi dagana 26. febrúar til 2. mars þar sem veittur er 20% afsláttur af öllum garnvörum. Tilboðið gildir í öllum verslunum Icewear Garn um land allt sem og í vefverslun Icewear Garn. Þetta er ótrúlega djúsí verslun fyrir hannyrðafólk. Alma Ragnarsdóttir, verslunarstjóri Icewear Garn, var mjög sátt við viðtökurnar í opnunarpartýinu og er spennt fyrir framtíð nýju verslunarinnar. „Hingað geta bæði byrjendur og lengra komnir leitað með hvaða uppskrift eða hugmynd sem er. Starfsfólkið er til staðar til að leiðbeina og hjálpa fólki að finna rétta garnið og rétt verkefni. Í dag er pelsa-, glimmer- og krullugarn einstaklega vinsælt og í Kringlunni gefum við því gott pláss á meðan áhuginn er sem mestur. Við viljum vera með lifandi og breytilegt úrval sem endurspeglar það sem er heitast hverju sinni. Þetta er ótrúlega djúsí verslun fyrir hannyrðafólk.“ Opnunartilboð er í gildi dagana 26. febrúar til 2. mars þar sem veittur er 20% afsláttur af öllum garnvörum. Tilboðið gildir í öllum verslunum Icewear Garn um land allt sem og í vefverslun Icewear Garn.
Kringlan Hannyrðir Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Viðskipti innlent Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Viðskipti innlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl