Jólakortið barst fimm árum of seint Lovísa Arnardóttir skrifar 27. febrúar 2026 09:32 Stimpillinn á bréfinu sýnir að bréfið var sent á Selfossi árið 2021. Aðsend Ingibjörg Ólafsdóttir hélt að eitthvað hefði komið fyrir frænku sína þegar hún fékk óvænt bréf frá henni í vikunni. Þær frænkur eigi yfirleitt aðeins í bréfaskrifum í gegnum jólakort. „
Ég þekkti bara skriftina og var svo hissa þegar ég sá þetta,“ segir Ingibjörg í samtali við fréttastofu. Hún hafi strax óttast að eitthvað hefði komið fyrir en svo þegar hún skoðaði bréfið nánar kom í ljós að um var að ræða gamalt jólakort sem var aðeins að berast henni núna. Kortið var sent 10.12.2021 og barst henni 25.02.2026. Ingibjörg hafði samband við frænku sína í gegnum Facebook sem fannst þetta afar fyndið og sendi góða kveðju til baka. Bréfið sem var sent árið 2021 og barst í vikunni. Ingibjörg Ólafsdóttir Þó svo að þær frænkur hlæi að þessu í dag segir Ingibjörg að sem betur fer hafi bréfið ekki verið með mikilvægari upplýsingum. Það væri afar slæmt ef mikilvægar upplýsingar hefðu tafist svo lengi. „Þetta er auðvitað mjög óvanalegt,“ segir Ingibjörg, afar glöð þó að fá jólakortið loksins til sín. Breytingar á póstþjónustu Í fréttum um póstþjónustu á þessum tíma kemur til dæmis fram í frétt frá Morgunblaðinu í nóvember 2021 að Pósturinn væri að fimmfalda afköst sín með nýrri flokkunarvél, Magna. Þá sagði að framundan væru stórir dagar í netverslun og jólum og að áætlanir gerðu ráð fyrir 50 prósenta fjölgun á innlendum og erlendum jólasendingum. þá var greint frá því í frétt í apríl árið 2022 að bréfum yrði aðeins dreift tvisvar í viku í stað þess að gera það annan hvern dag. Með þessu var Pósturinn er með þessu að bregðast við „verulegri fækkun bréfasendinga“. Afar fátítt Guðrún Óla Jónsdóttir upplýsingafulltrúi Póstsins segir svona mál sem betur fer afar fátíð. „Þar sem jólakort eru yfirleitt send sem almenn bréf eru þau ekki rekjanleg, þ.e. við getum ekki rakið ferlið frá því að órekjanlegt bréf er sett í póst og þar til það er afhent. Þess vegna er því miður engin leið fyrir okkur að komast til botns í þessu tiltekna máli,“ segir Guðrún.
Jól Pósturinn Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira