Lífið

Tann­læknir sem tann­krem á ösku­daginn

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Búningur dagsins, tannkrem hjá Sverri tannlækni á Selfossi.
Búningur dagsins, tannkrem hjá Sverri tannlækni á Selfossi. Aðsend

Sverrir Örn Hlöðversson, tannlæknir á Selfossi tók þátt í öskudagsfjörinu í bæjarfélaginu og mætti, sem tannkrem á tannlæknastofnuna sína í morgun.

„Já, það var tannkrem þetta árið aðallega af því að það er svo erfitt að vera tannþráður. Ég hef klæðst í alls konar búninga á öskudaginn síðustu ár. Búningarnir vekja alltaf athygli og viðskiptavinirnir taka þeim vel. Öskudagurinn er alltaf i miklu uppáhaldi hjá mér“, segir Sverrir Örn, kátur og hress með daginn.

Öskudagurinn eitt árið hjá Sverri.Aðsend

Sverrir Örn við vinnu sína á tannlæknastofnunni í búningi einn öskudaginn.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.