Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Bílanaust 18. febrúar 2026 14:33 Bílanaust hefur flutt starfsemi sína að Álfabakka 4 í Reykjavík. Ingi Þór Harðarson er framkvæmdastjóri Bílanausts. Mynd/Anna Guðrún Torfadóttir. Bílanaust hefur flutt starfsemi sína í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 í Reykjavík. Húsið, sem er í einkennandi gulum lit Bílanausts, er hannað og byggt sérstaklega fyrir starfsemi félagsins. „
Þetta var eini liturinn sem kom til greina,“ segir Ingi Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Bílanausts, brosandi. Nýja húsnæðið er sérsniðið að þörfum fyrirtækisins og hefur hvert smáatriði verið úthugsað með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini á höfuðborgarsvæðinu. Nýja húsnæðið við Áflabakka er sérsniðið að þörfum fyrirtækisins og hefur hvert smáatriði verið úthugsað með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini.Mynd/Ragnar Th. Sigurðsson. „Við höfum hægt og rólega verið að sprengja allt húsnæði utan af okkur vegna aukinnar sölu og umsvifa á undanförnum árum. Og nú leysum við úr því með þessu glæsilega og sérhannaða húsnæði.“ Miðsvæðis og með öfluga dreifingu Staðsetningin við Álfabakka er afar miðsvæðis og tryggir góða tengingu í allar áttir. „Skutlurnar okkar þjóna öllu höfuðborgarsvæðinu og dreifingin verður mjög góð héðan,“ bætir Ingi við. Mynd/Anna Guðrún Torfadóttir. „Dótakista bílaáhugamannsins“ Bílanaust hefur lengi verið þekkt sem sannkölluð dótabúð bílaáhugamannsins. „Hér finnur fólk allt sem hugur þess girnist. En við leggjum okkur líka fram um að aðstoða fólk sem lifir ekki og hrærist í bílaheiminum. Hvort sem það vantar aðalljósaperu í bílinn eða ráð um hvaða hreinsiefni henta best fyrir bílskúrsþvottinn. Við viljum þjónusta fagfólkið, áhugafólkið og alla hina eins vel og mögulegt er.“ Kjarnastarfsemi Bílanausts er varahlutaþjónusta og rekur fyrirtækið stóran varahlutalager í nýja húsnæðinu. Anna Guðrún Torfadóttir. „Við eigum til varahluti í allar helstu og algengustu bílategundir á Íslandi. En starfsemin nær líka mun víðar. Allt frá alternatorum til barnabílstóla.“ Meðal annarra vöruflokka eru ferðavörur á borð við þverboga, farangursbox, hjólafestingar og skíðafestingar. Þá rekur Bílanaust barnabílstólaleigu þar sem leigðir eru gæða barnastólar frá sænska framleiðandanum Axkid, sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Flutningunum verður fagnað með veglegri opnunarhátíð laugardaginn 21. febrúar, frá klukkan 10 til 16. Ingi Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Bílanausts, hvetur sem flesta til að mæta.Mynd/Anna Guðrún Torfadóttir. Opnunarhátíð með pompi og prakt Tilefni flutninganna verður fagnað með veglegri opnunarhátíð laugardaginn 21. febrúar frá klukkan 10 til 16. „Við ætlum að tjalda öllu til. Það verða lukkuleikir með veglegum vinningum, DJ Dóra Júlía sér um tónlistina, glæsileg opnunartilboð og gómsætar veitingar,“ segir Ingi. Hann segist vonast til að sjá sem flesta á laugardaginn. „Þetta eru stór tímamót í langri sögu Bílanausts og við hlökkum til að fagna með viðskiptavinum okkar. Við erum algerlega til staðar fyrir allt fólk sem er á ferðinni.“ Mikið verður um að vera í nýja húsnæðinu að Álfabakka 4, sem án efa mun gleðja bílaáhugafólk og aðra um ókomna tíð.
Bílar Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira