Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 10:38 Rósa Björk Brynjólfsdóttir telur að nú sé uppi tækifæri hjá VG til endurkomu. Aðsend Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, íhugar nú alvarlega hvort hún bjóði sig fram til formanns VG fyrir landsfund flokksins sem fer fram dagana 7.-8. mars á Selfossi.
Í umfjöllun Gímaldsins frá því gær kom fram að nafn Rósu Bjarkar hefði oftast verið nefnt hjá viðmælendum fjölmiðilsins sem næsta formannsefni. Fréttastofa sló á þráðinn til Rósu og spurði hana hvort hún hygðist láta slag standa. „Margir félagar mínir hafa skorað á mig, sem er virkilega ánægjulegt, og ég er alvarlega að íhuga framboð til formanns,“ segir Rósa Björk. Hún segir henni sjálfri, og félögum hennar í VG, finnist sár þörf fyrir sjónarmið VG í samfélagslegri umræðu og stjórnmálum. „Á Alþingi vantar sárlega aðhald í umhverfismálum og klassískum vinstri málum. Það er tækifæri núna hjá VG til endurkomu.“ VG - Samfylkingin - VG Rósa Björk var kjörin á þing fyrir Vinstri græn árið 2016. Hún studdi ekki ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar eftir kosningarnar 2017 og fór svo að hún gekk úr flokknum, sem hún sagðist ekki eiga samleið með, og fór í Samfylkinguna árið 2020. „Pólitískar áherslur mínar og Samfylkingarinnar eru nátengdar með mikilvægi á aukinn jöfnuð í samfélaginu þar sem allir geta notið sín á eigin forsendum, burtséð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálfbærni og opið, framsækið og fjölbreytt samfélag með áherslu á virka fjölþætta utanríkisstefnu. Að undanförnu hefur Samfylkingin að auki lagt mun meiri og skýrari þunga á loftlagsmálin, og umhverfismálin en áður og lagt fram góða áætlun um græna viðspyrnu út úr COVID-19 kreppunni. Það gerir útslagið fyrir mig þegar kemur að því að taka þessa ákvörðun um að ganga í Samfylkinguna og þingflokk hennar,“ sagði Rósa í desember 2020. Rósa yfirgaf svo Samfylkinguna árið 2024 og var í öðru sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður í þingkosningunum í nóvember það ár. Vinstri græn náðu ekki inn þingmanni. Glæný forysta handan við hornið Ljóst er að á næsta landsþingi VG verður mikil endurnýjun því í gær greindi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, núverandi varaformaður flokksins, frá því að hann gæfi ekki kost á sér áfram í forystu flokksins. Hann útilokaði þó ekki framboð í næstu þingkosningum. Rósa Björk segist ekki gefa kost á sér á lista VG fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en forvalinu lýkur 22. febrúar. Hún vilji láta til sín taka í landsmálunum.
Vinstri græn Tengdar fréttir Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til forystu í flokknum á landsfundi í byrjun mars. 16. febrúar 2026 10:50 VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. 13. febrúar 2026 12:12 Drífa Snædal snýr aftur Drífa Snædal, talskona Stígamóta, ætlar að ganga aftur til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG). Hún yfirgaf flokkinn með áberandi hætti árið 2017 vegna óánægju með þá fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. 9. febrúar 2026 18:14 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Fleiri fréttir Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Sjá meira
Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til forystu í flokknum á landsfundi í byrjun mars. 16. febrúar 2026 10:50
VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. 13. febrúar 2026 12:12
Drífa Snædal snýr aftur Drífa Snædal, talskona Stígamóta, ætlar að ganga aftur til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG). Hún yfirgaf flokkinn með áberandi hætti árið 2017 vegna óánægju með þá fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. 9. febrúar 2026 18:14