Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Smári Jökull Jónsson skrifar 14. febrúar 2026 13:02 Valentínusardagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim í dag. Vísir/Getty Valentínusardagurinn er í dag en hann skipar sífellt stærri og stærri sess í hugum Íslendinga. Deildarstjóri í Garðheimum segir sprengingu hafa orðið á síðasta ári og segir Íslendinga taka öllum gleðidögum fagnandi.
14. febrúar er valentínusardagurinn en hann er nefndur eftir dýrlingnum heilögum Valentínusi og hefur til fjölda ára skipað stóran sess hjá ástföngnu fólki, ekki síst í Bandaríkjunum. Hér á Íslandi hefur hann verið fyrirferðameiri á síðustu árum. „Hann hefur stækkað töluvert og sérstaklega síðustu ár og það varð eiginlega svona sprengja síðasta ár. Ég hugsa að það megi nú alveg rekja það til þess að stefnumótamenning er nú svolítið að aukast á Íslandi. Maður hefur heyrt í ungu strákunum æ, ég klikkaði á að panta borð og svona,“ sagði Ólöf Ágústa Erlingsdóttir deildarstjóri blómadeildar í Garðheimum í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Annar markhópur á konudaginn Fólk á öllum aldri fagni deginum og ekki megi gleyma því að hann sé líka vinadagur. Fjölbreytnin er töluverð í vali á blómum. „Rauðar rósir eru náttúrulega mjög vinsælar en ekkert alveg algilt. Það er bara blandað í blómvendi og bara litur sem að vinurinn eða elskandinn vill og þykir fallegt.“ Rauðar rósir eru ávallt vinsælar að sögn deildarstjóra blómadeildar Garðheima.Vísir/Getty Konudagurinn er um næstu helgi og því nóg um að vera í blómabransanum þessa dagana. „Við erum svolítið stemningsfólk, við tökum bara öllum gleðidögum fagnandi. Svo er konudagurinn og þá er þetta kannski meira eiginmennirnir og afar sem færa ömmubörnum og stelpum og konunum sínum og dætrum. Þetta er svolítið annar markhópur næstu helgi.“
Blóm Valentínusardagurinn Verslun Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira