Tottenham í tómu tjóni Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 21:36 Útlitið er ekki gott fyrir Tottenham Vísir/Getty Vandræði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni héldu áfram á heimavelli í kvöld þar sem liðið tapaði fyrir Newcastle United, 1-2. Lærisveinar Thomas Frank eru nú aðeins fimm stigum frá fallsæti.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Tottenham undir stjórn Frank á yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildini og í kvöld lenti liðið undir í uppbótartíma venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik þegar að Malick Thiaw kom boltanum í netið og Newcastle United yfir. Archie Gray tókst að jafna metin fyrir Tottenham á 64.mínútu en heimamenn gátu ekki fagnað lengi því aðeins fjórum mínútum eftir mark Gray var Jacob Ramsey búinn að koma Newcastle United aftur yfir í stöðuna 1-2. Reyndist mark Ramsey vera sigurmark leiksins. Úrslitin gera það að verkum að Tottenham vermir nú 16.sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er þar með 29 stig, aðeins fimm stigum frá fallsæti. Sigurinn lyftir Newcastle hins vegar upp í 10.sæti, þar er liðið með 36 stig. Trylltar mínútur í Liverpool Á sama tíma og Tottenham laut í lægra haldi gegn Newcastle hafði Bournemouth betur á útivelli gegn Everton, 1-2. Iliman Ndiaye kom Everton yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu en gestirnir frá Bournemouth svöruðu með tveimur mörkum á þrigga mínútna kafla í kringum sextugustu mínútu, það voru Rayan og Amine Adli sem skoruðu mörkin tvö. Skömmu síðar missti Everton mann af velli þegar að Írinn Jake O´Brien fékk að líta rauða spjaldið. Leiknum lauk með 1-2 sigri Bournemouth. Liðið jafnar þar með Everton að stigum, bæði lið eru með 37 stig að loknum 26 leikjum í áttunda og níunda sæti.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Newcastle United Everton FC AFC Bournemouth Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira