„Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Stefán Árni Pálsson skrifar 6. febrúar 2026 11:14 Þórarinn, sem er oftast kallaður Tóti, er með hlaðvarpið EIn pæling. Hlaðvarpið Ein pæling með Þórarni Hjartarsyni er sífellt að verða vinsælla. Hér er um mikinn hægrimann að ræða og Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi hjá honum í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. Þórarinn er umdeildur og hefur skoðanir sem ekkert endilega allir eru sammála. „
Ég kannski geng harðar heldur en flestir Íslendingar fram í því að ég tel að afskipti ríkisins eigi að vera töluvert minni heldur en þau eru í dag. Jú og kulnun er náttúrulega bara eitthvað kjaftæði. Þetta er náttúrulega orðið bara eitthvað tískufyrirbæri sem að við eigum náttúrulega ekkert efni á. Að sjálfsögðu mun það náttúrulega hverfa síðar meir, að það verður engin kulnun hérna eftir þegar lífskjör fara að rýrna og hlutirnir fara að verða erfiðari,“ segir Þórarinn og telur hann að woke-isminn svokallaði sé á undanhaldi. Erum að koma úr einkennilegum tíma „Ég tel það vera jákvætt. Þú horfir bara á hvað við erum að koma út úr ótrúlega einkennilegum tíma. Bara svona frá 2017 og allt til ársins 2024 til 2025 þar sem svona rétttrúnaðurinn bara náttúrulega tók yfir. Það tókst að rýra lífskjör hérna undir þeim formerkjum að við værum að vera góð við fólk, en ég tel þetta vera nauðsynlegan hlut sem er að gerast núna. Og ég get alveg gert mér grein fyrir því að þetta er erfið fæðing fyrir marga. Svo aftur á móti þá er þetta bara nauðsynlegt svo við höldum í tjáningarfrelsið og annað.“ Þórarinn Hjartarson skafar ekki af hlutunum.Vísir/Anton Brink Þórarinn finnur fyrir aukinni athygli eftir tilkomu hlaðvarpsins. „Ég fæ sérstaklega mikla athygli frá ungum strákum. Og ég held að það sé sérstaklega út af því að ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir og það séu allt vísindi og þeir séu ómögulegir og þeir einhvern veginn séu, feðraveldið sé búið að tvístrast út um allt samfélagið og allt er ómögulegt út af þeim.“ Hér er um fjölskyldumann að ræða, giftur, faðir tveggja drengja á leikskólaaldri. Hann segir að konan hans sé alls ekki alltaf sammála honum og síður pabbi hans, sem er víst mikill vinstrimaður. En það breytir ekki því að hér er um mikinn hægrimann að ræða. „Annað er náttúrulega bara að hælisleitendakerfinu verði lokað. Það er alveg óumflýjanlegt og það er ekkert út af því að ég vil það, pólitísk eftirspurn er þannig. Ég hef svona pínulitlar áhyggjur af því hvernig hlutir eru að þróast, til dæmis í Evrópu. Hvað við erum ótrúlega lengi að gera okkur grein fyrir því að þetta sé óumflýjanlegt. Þannig að hælisleitendakerfinu verður að sjálfsögðu lokað, en þá þurfum við líka bara að horfa til þess hvernig við ætlum að gera vel við þá hópa sem eru hérna. Út af því að ef að það verður ekki farið í það að skoða þessi mál og teknar svolítið af erfiðum ákvörðunum, þá munum við bara lenda í því sem er að gerast í Þýskalandi núna.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Morgunkaffi í Íslandi í dag Hlaðvörp Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira