Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta ÍMARK 5. febrúar 2026 12:19 Fyrirlesararnir vinna daglega með stærstu fyrirtækjum heims og munu miðla raunverulegri reynslu. Ímark hefur opnað fyrir miðasölu á Ímark-deginum 2026 sem fer fram 6. mars í Háskólabíói og verður sá stærsti í 40 ára sögu félagsins. Í ár er dagskráin óvenjumetnaðarfull, með þremur af eftirsóttum alþjóðlegu sérfræðingum á sviði markaðsmála.
Ímarkdagurinn 2026 snýst um eitt brýnasta viðfangsefni sem fyrirtæki standa frammi fyrir: Hvernig ná má athygli, byggja upp vörumerkjavirði og skila raunverulegum viðskiptalegum árangri í sífellt harðari samkeppni. Til landsins koma þrjár alþjóðlegar stjörnur Jon Evans (Uncensored CMO), einn áhrifamesti markaðssérfræðingur heims, þekktur fyrir beitta nálgun og skýrar tengingar milli sköpunar og arðsemi. Erindi Jon er „The Extraordinary Cost of Dull“. Jon sýnir okkur af hverju það er dýrasta ákvörðun ferilsins að vera leiðinlegur og hvernig sköpunargleði er lykillinn að mælanlegum hagnaði. Patrick Fagan, leiðandi atferlisvísindamaður og metsöluhöfundur, sem vinnur með alþjóðlegum vörumerkjum að því að skilja hvað raunverulega stýrir athygli og ákvörðunum. Patrick útskýrir sálfræðina á bak við „dyravörð heilans“ (The Brain’s Bouncer) og af hverju ákveðið efni, allt frá hvolpum yfir í „banana“, fær okkur til að hætta að skrolla og veita athygli. Vicky Owens, Stofnandi og forstjóri Socially Speaking Media, sem vinnur með vörumerkjum á borð við Netflix, Sky og ghd. Vicky er þekkt fyrir að afhjúpa hvað virkar raunverulega á samfélagsmiðlum og hvað ekki. Hún er margverðlaunaður fyrirlesari, umsjónarmaður Business Class hlaðvarpsins (top 1% á heimsvísu) og hefur byggt upp öflugt alþjóðlegt fylgi með yfir 250.000 fylgjendum. Sameiginlegt með fyrirlesurunum er að þeir vinna daglega með stærstu fyrirtækjum heims og miðla raunverulegri reynslu, ekki kenningum. Á sama degi verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur þegar Markaðsfyrirtæki ársins og ÁRA, árangursríkasta auglýsingaherferð ársins, verða kynnt. Miðasala er hafin á Tix.is. Þetta er viðburður sem markaðs- og stjórnendateymi vilja ekki missa af. Takmarkaður miðafjöldi.
Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira