„Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Agnar Már Másson og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 2. febrúar 2026 22:01 Skarphéðinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sagafilm, neitar því að bíóhúsin muni hverfa fyrir fullt og allt. Vísir/Lýður Valberg Framkvæmdastjóri Sagafilm segir það alltaf erfitt að kveðja bíóhús en trúir því ekki að bíóhúsin muni hverfa fyrir fullt og allt.
Mikil tímamót urðu í sögu kvikmyndahúsa landsins um helgina þegar dyrum Bíóhallarinnar og Sambíóanna í Álfabakka í Mjódd var lokað í síðasta skipti. Árni Samúelsson opnaði Bíóhöllina þann 2. mars árið 1982 sem þótti bylting á sínum tíma. Skarphéðinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sagafilm, neitar því að bíóhúsin muni hverfa fyrir fullt og allt. „Ég held að það gerist seint að við gefum bíóið alveg upp á bátinn,“ sagði hann í viðtali í beinni útsendingu í fréttatíma Sýnar í kvöld. „Þetta er einfaldlega liður í breytingum sem eru búnar að vera að eiga sér stað og breytingar í áhorfu hafa átt sér stað alveg frá því að við vorum fyrst að horfa á bíó.“ Hann viðurkennir þó að vegna streymisveitna hafi bíóaðsókn breyst. „Við förum sjaldnar í bíó, en þegar það eru myndir sem við viljum sjá þá förum við á þær í bíó.“ Þetta sé liður í breytingum sem eigi sér stað um allan heim. „Það er alltaf ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin. En þetta er liður í þróun sem er löngu hafin og að horfa á eftir svona bíóhúsi vekur upp minningar um allar stundirnar sem maður hefur átt í bíóhúsum. Hann segist ávallt hafa kallað Sambíóin í Álfabakka sínu upprunalega nafni: Bíóhöllina. Þetta var algjör bylting þegar Bíóhöllinni var komið á fót. „Þetta gekk út á annað og meira en hver sýndi hvaða bíómynd heldur líka aðstöðuna,“ sagði Skarphéðinn.
Bíó og sjónvarp Menning Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið HAM boða endalok alls Tónlist „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira