EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Brimborg og Ragnheiður Tryggvadóttir 2. febrúar 2026 10:44 EX60 er nýjasta útspil Volvo. Hann er tæknilegasti bíll Volvo til þessa og stelur hressilega senunni í EX fjölskyldunni. Volvo kynnti sitt nýjasta tromp með stæl í Stokkhólmi á dögunum, EX60, splunkunýjan alrafmagnaðan SUV. Við létum okkur ekki vanta og biðum með öndina í hálsinum ásamt þrjú hundruð öðrum eftir að hulunni yrði svipt af þessum bíl sem sagður er leikbreytir í rafbílaheiminum.
Lítið hafði verið gefið út um bílinn en búið að kynda undir spennuna með kitlum um að þessi bíll setji ný viðmið, ekki bara fyrir neytendur heldur líka fyrir Volvo, EX60 skari fram úr á svo mörgum sviðum. Hann er fjórði bíllinn í EX-línu Volvo, mitt á milli EX90 og EX30. Einhverjir hafa kallað hann „miðjubarnið“ í EX-familíunni en miðjubörn eiga til að falla í skuggann, óverðskuldað en samt. En ekki þessi. EX60 stelur senunni og það svo um munar. Allt er nýtt við þennan bíl, allt frá aðferðum við framleiðslu til tæknilausna. Ekki nóg með að EX60 svari kalli kvíðakvalinna rafökumanna um mun lengri drægni en áður hefur sést hjá Volvo í þessum stærðarflokki og óþolinmóðra um styttri hleðslustopp, heldur er hann framleiddur með nýjum aðferðum sem brjóta blað í samsetningu rafbíla og skilar sér meðal annars í hagstæðara verði. Þriggja punkta bílbeltið hefur nú verið uppfært í takt við nútíma snjalltækni og þá hefur engu verið til sparað í hönnun. Með snjalltækni heldur bíllinn áfram að „læra“ og batna og, það er hægt að spjalla við hann! En byrjum á því sem fær hjörtu rafbílaeigenda til að slá hraðar. EX60 getur dúndrað inn 320 kílómetrum á 10 mínútum í hraðhleðslustöð. Drægnikvíðinn heyrir sögunni til Volvo lofar að 112 kWh rafhlaða EX60 flengi okkur allt að 810 kílómetra á einni hleðslu, við fullkomnustu aðstæður. Bíllinn fæst einnig með 91 kWh rafhlöðu og þá með 660 km drægni og 80 kWh rafhlöðu með 620 km drægni. Annað sem rafbílaeigendur sjá í hillingum er styttra hleðslustopp en EX60 getur dúndrað inn 320 kílómetrum á 10 mínútum í hraðhleðslustöð og það tekur rétt innan við tuttugu mínútur að komast úr 10% upp í 80%, líka þegar kalt er úti, eða eins og Eric Severinson, viðskiptastjóri og yfirmaður stefnumótunar hjá Volvo segir: „Þú þarft ekki lengur að aðlaga þig að breyttum lífsstíl þegar þú kaupir rafbíl. Við erum hætt málamiðlunum. Með EX60 öðlast fólk frelsi til að komast hvert sem er á 100% rafmagni.“ Brjóta blað í sögu samsetningar rafbíla Þessi bíll er stærsta stökk Volvo í þeirri vegferð að verða alrafmagnaður framleiðandi og galdurinn segir Andres Bell, tæknistjóri og yfirverkfræðingur hjá Volvo, felast í því hvernig bíllinn er búinn til. EX60 er byggður frá grunni sem rafbíll og er hver fruma rafhlöðunnar (e. cells) sambyggð inn í botnplötu EX60 sem þýðir m.a. lægri þyngdarpunkt, flatur botn og því meira rými innan í bílnum. Hér má sjá hvernig bláar rafhlöðufrumurnar (e. battery cells) raðast inn í botnplötuna. Með nýrri steyputækni í stórum steypumótum (e. Mega Casting) er hægt að steypa stóra hluta bílsins í einu lagi. Það sem áður var samsett úr 100 mismunandi pörtum er nú aðeins eitt stykki. „Vélarnar buðu einfaldlega ekki upp á svo stór mót fyrr en nú. Þetta gerbreytir ferlinu,“ segir Mats Brodin, verkfræðingur í megasteypu hjá Volvo. Þetta þýðir að bíllinn er léttari, sterkari og stífari og færri handtök þarf við framleiðsluferlið. Á sýningunni mátti sjá þau hundrað stykki sem Mega Casting steypuaðferðin hefur nú skipt út fyrir eitt. Tæknilegasti bíll Volvo EX60 er jafnframt tæknilegasti bíll Volvo til þessa og búinn hugbúnaðarkerfi, eins konar gervigreindar-ofurheila, sem vinnur úr gögnum í rauntíma og þróar sig áfram. Kerfið kallast Hugin Core, eftir hrafni Óðins og er þróað í samstarfi við Google, NVIDIA og Qualcomm. Hugin Core sér um að bíllinn „hugsi“, greini og bregðist við, og stuðlar þannig að meira öryggi á veginum. Bíllinn notar ekki bara gögn úr eigin akstri heldur gögn frá öllum EX60 bílum í umferð og verður þannig betri og betri með tímanum. Hugin Core gerir Volvo einnig kleift að uppfæra allan flotann í einu og þau lofa að ekki þurfi að fara með EX60 eins oft og aðra bíla í þjónustutékk. Rafhlaðan er með 10 ára ábyrgð. Þá er hann sá fyrsti bíll Volvo sem búinn er Google Gemini gervigreind. Fyrir tæknifælna sem þrá app-laust líf og færri takka hljómar „sá tæknilegasti“ ekkert endilega jákvætt, en Anna Arasa Caspar, sem stýrir notendaupplifun hjá Volvo, segir engar áhyggjur þurfa að hafa. Meiri tækni þýði þvert á móti einfaldara líf. „Við hönnum með fólkið í fyrirrúmi, tæknin á að stuðla að þægilegra og betra lífi, öruggara og ekki síst einfaldara. „Allt á að virka á auðveldan og einfalda hátt, allt frá táknunum á stjórnskjánum til raddstýrðra skipana.“ Anna Arasa Caspar stýrir notendaupplifun hjá Volvo og lofar að meiri tækni þýði einfaldara líf. Og stjórnborðið er hannað með þetta í huga. Láréttur stjórnskjárinn liggur hátt svo auðveldlega má gjóa augum á hann við aksturinn. Hann er tvískiptur og helstu aðgerðir eru næst ökumanninum meðan leiðakortið fær nóg pláss til hægri. Neðst eru allar grunnstillingar. Á litla skjánum í mælaborðinu sem er í augnlínu við ökumanninn er hægt að stilla hvaða upplýsingar eru sýnilegar, hraði, bílar í kring, kort o.f.l. Allt gott og blessað, en þarf ég að geta spjallað við bílinn minn? „Mig langar í snúð og vantar í hugmyndir fyrir barnaafmæli“ Gemini-sérfræðingurinn sem tekur á móti mér í einum sýningarbílnum segir einmitt svo sniðugt að geta spjallað við bílinn. Þannig geti ég notað tímann á ferðinni í alls konar stúss, án þess að þurfa að nota hendurnar eða taka augun af veginum. „Hvenær var aftur fótboltaæfingin, það kom póstur um það í vikunni,“ sagði sérfræðingurinn við bílinn og Gemini fann póstinn, sagði okkur hvenær æfingin var á dagskrá og bauðst til að festa hana í Google Calendar. „Ég er svangur, langar í kanilsnúð,“ sagði hann næst og Gemini benti á hvaða bakarí væru á leiðinni og hvar ódýrasta snúðinn væri að finna. „Það er aðeins of kalt í bílnum,“ Gemini hækkaði hitann. „Sendu skilaboð á Jón um að muna eftir jakkanum.“ Afgreitt. „Þú getur meira að segja notað tímann í bílnum til að skipuleggja barnaafmæli og spjallað við Gemini um hugmyndir að skreytingum í takt við áhugamál barnsins. Gemini kemur með tillögur og bendir þér á búðirnar sem selja skreytingar sem henta og hve langt er í næstu búð sem selur þær.“ Þá segir hann að Gemini muni þegar fram líða stundir, læra á umhverfið og það komi að því að hægt verði að spyrja út í örnefni og staði á leiðinni. Ég sé fyrir mér stórskemmtilega landafræðikennslu á langferðum með unglingana. Nýtt öryggisbelti í EX60 sem byggir á nýjustu tækni Volvo og öryggi hafa verið órjúfanleg tvenna í næstum hundrað ár og þar eru þau ekkert að slá af. Hátæknilegar endurbætur hafa verið gerðar á þriggja punkta öryggisbeltinu sem Volvo kynnti fyrst til sögunnar 1956. Virkni beltisins hefur í sjálfu sér lítið breyst í grunninn síðan þá en með tæknilausnum dagsins í dag hefur Volvo þróað það sem þau kalla fjölaðlögunar-öryggisbelti (e. Multi-Adaptive). Ég var dálítið spennt fyrir þessu því þó ég noti að sjálfsögðu alltaf öryggisbelti skilyrðislaust þá finnst mér þau ekki endilega þægileg. Yrði þetta belti öðruvísi í laginu? Volvo kynnti þriggja punkta öryggisbeltið til sögunnar árið 1959. Það belti festi fólk einfaldlega niður og gaf ekki eftir. Beltið hefur þróast síðan þá og tæknilegasta útgáfan er nú í EX60. „Þriggja punkta beltið hefur sýnt að það gerir það gagn sem það á að gera. Einnig er svo einfalt að smella því á sig að fólk notar það. Auðvitað eru til annar skonar bílbelti, til dæmis fjögurra punkta sem leggjast yfir báðar axlir. En það er of mikil hætta á að fólk noti ekki belti sem fleiri handtök þarf til að festa,“ segir sérfræðingurinn. Þess vegna kom ekkert annað til greina en að þróa þriggja punkta beltið áfram og útkoman er eins konar snjallbelti. Nýja beltið skynjar sem sagt stærð, þyngd og stellingu farþega og gefur mismunandi mikið eftir við högg með tilliti til alls þessa, auk hraða bílsins og einnig hvaðan höggið kemur. Og eins og annað í þessum bíl heldur beltið áfram að bæta við „þekkingu“ sína út frá gögnum frá öllum flota EX60 og öryggið eykst. Hið nýja öryggisbelti skynjar hæð og þyngd þess sem situr í EX60, sem og stellingu viðkomandi og bregst við höggi út frá því, hraða bílsins og hvaðan höggið kemur. Skandinavísk hönnun eins og hún gerist best Snjónum kyngdi niður fyrir utan en blússandi stemning var í húsinu. Búið var að stilla upp nokkrum bílum til að skoða og slegist um að komast að. Það kom þó að því að ég gat tyllt mér undir stýri og svei mér þá, það verður ekki af hönnuðum Volvo skafið þegar kemur að litum, formum og áferð og innra skipulagi. Ég settist inn í dempaða hljóðvist, skandinavíska hlýju með náttúrulegum efnum, mildum tónum og með allt innan seilingar. Bollahaldarar og geymsluhólf eru sniðuglega hönnuð. Rýmið virkilega notalegt og mjög opið en í loftinu er risastór gluggi og hægt að stilla gagnsæi rúðunnar í mikilli sól. Ytra útlitið sagði Nicholas Gronenthal, yfirhönnuður Volvo, byggja á XC60 en EX60 er þó breiðari, með lengra haf milli hjóla og því rýmri að innan. Hreinar línur og úthugsuð straumlínulögun verður til þess að bíllinn svífur í gegnum alla vindmótstöðu. Ný útgáfa af framljósunum, hamri Þórs, setur sterkan svip á bílinn og búið er að endurhanna afturljósin í skarpara útliti. Hér hefur tekist vel til. Framleiðsla EX60 er að detta í gang og salan fer vel af stað því það er hægt að panta sér bíl nú þegar. Afhending er áætluð í lok sumars og í byrjun næsta árs á bílnum með stærra batteríinu 117kWh. Upplýsingar um EX60, afhendingartíma og verð er að finna hér. Sumum finnst kannski bratt að tala um að EX60 setji ný viðmið og breyti leiknum. Þetta er nú bara fimm sæta fjölskyldujeppi sem tekur hóflegt pláss á götunni. En hann leynir á sér. Ný nálgun í framleiðsluaðferðum, nýjasta tækni, gervigreind, svakalegar drægnitölur, stuttur hleðslutími, allt mun þetta gerbreyta veruleika rafökumanna. Eða eins og Eric Severinson sagði, við þurfum ekki lengur að gera málamiðlanir og breyta lífi okkar þegar við kaupum rafbíl. Þetta er bara ekkert einasta ves. Það verður áhugavert að finna hvernig hann rúllar á götunum. Ég er allavega að tryllast úr spenningi.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Fleiri fréttir EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira