Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Árni Sæberg skrifar 28. janúar 2026 13:56 Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Vísir/Ívar Fannar Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún gefi kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þá segir hún ekki hafa verið ákveðið hvort bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tefli fram lista í kosningunum. „
Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hefur verið að funda með trúnaðarfólki og við erum í góðu samtali. Það verður fundað fljótlega aftur um framboðsmálin. Það hefur engin ákvörðun verið tekin og það liggur ekkert fyrir núna um það hvernig hlutunum verður háttað,“ segir Íris í samtali við Vísi. Eyjafréttir birtu í morgun niðurstöður skoðanakönnunar Maskínu, sem sýnir fram á að Fyrir Heimaey mælist með 27 prósenta fylgi í Vestmanneyjum, Eyjalistinn 23 prósenta og Sjálfstæðisflokkurinn 50 prósenta. Fyrir Heimaey og Eyjalistinn mynda núverandi meirihluta bæjarstjórnar. Vert er að taka fram að úrtak könnunarinnar, 84 Eyjamenn, er svo lítið að niðurstöðum hennar verður trauðla gefið mikið vægi. Þá svöruðu sjö hinna 84 Eyjamanna spurningunni ekki. Hugur í fólki Íris bendir á að Fyrir Heimaey sé bæjarmálafélag en ekki stjórnmálaflokkur og því þurfi að ákveða sérstaklega fyrir hverjar kosningar hvort boðið verði fram. „Það er alveg hugur í fólki en eins og ég segi, formlega er ekki búið að taka neina ákvörðun.“ Þá segir hún að sama gildi um sig persónulega, hún hafi ekki ákveðið hvort hún fari fram á ný. „Ég ákvað að gefa mér tíma. Það hefur verið búin til rosaleg tímapressa í þessu en við þurfum ekki allan þennan tíma, eða ég þarf hann allavega ekki. Þannig að ég ætla að gefa mér góðan tíma og taka ákvörðun hvort ég gefi kost á mér í vor. En það skýrist náttúrulega fljótlega.“ Hún segist auðmjúk og þakklát fyrir að hafa fengið að starfa við bæjarmálin í átta ár en það sé alltaf ákvörðun að gefa kost á sér. Margt spennandi Spurð að því hvort hún velti einnig fyrir sér á hvaða lista mögulegt framboð hennar yrði segir Íris ákvörðunina fyrst og fremst snúast um hvort hún gefi kost á sér. „Svo liggur það í hlutarins eðli að það þyrfti að vera fyrir einhvern. Ákvörðunin er fyrst og fremst hvort ég gef kost á mér til að halda áfram í pólitík. Ég ætla að gefa mér tíma til að velta því fyrir mér, af því að það er margt spennandi og ýmislegt. En ég held að það sé alltaf hollt fyrir alla þá sem eru í pólitík að staldra við og velta því fyrir sér hvort fólk eigi að halda áfram.“
Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira