Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 27. janúar 2026 09:30 Ragga nagli ræddi við Bítið á Bylgjunni um eitraða og skaðlega megrunarmenningu. Facebook „Það skiptir máli að fræða sérstaklega ungu kynslóðina um að líkamar séu alls konar og það sé ekki eftirsóknarvert útlit að vera svona ofboðslega grannur,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, í viðtali við Bítið í gær. Viðfangsefnið snerist að vannæringarmenningu sem virðist færast í aukana en næringarfræðingurinn Guðrún Nanna vakti athygli á málinu í pistli fyrir helgi. Sjá einnig: Vannæring er aftur komin í tísku Pistill Guðrúnar Nönnu, sem ber heitið Vannæring er komin aftur í tísku, fer meðal annars yfir öfga í þyngdarstjórnunarlyfjum og skaðlega megrunarmenningu sem virðist hafa heltekið samfélagið. Verri en Kate Moss 1990 Bítið tók púlsinn á Röggu nagla sem er bæði sálfræðingur og einkaþjálfari og leggur mikla áherslu á heilbrigt líferni. Hún segir þetta lífshættulega þróun sem mikilvægt sé að veita forvörn fyrir. „Mjónutrendið er komið aftur í tísku og við verðum að sýna mótstöðu í verki. Þá sérstaklega konur, rífa í lóðin, taka prótein, verða sterkar og stærri og taka pláss. Þetta er mjög ógnvænleg þróun, sérstaklega þessar myndir sem maður er að sjá frá Hollywood,“ segir Ragga og bætir við að hún hafi varla séð það verra. „Ég ólst upp í níunni (e. The 90’s) og við munum eftir Kate Moss til dæmis. Fólk hafði miklar áhyggjur af henni en þetta svokallaða heróín neytenda útlit sem einkenndi hana var í tísku. Núna sjáum við konur sem eru áberandi í samfélaginu og eru mun grennri en hún var. Þetta eru næstum gangandi beinagrindur með húðflygsur utan á sér. Auðvitað hefur aðgengi að þyngdarstjórnunarlyfjum aukist svakalega og líka slík lyf sem eru ekki uppáskrifuð frá lækni,“ segir Ragga sem geti auðvitað verið lífshættulegt. „Fólk borðar ekki eins mikið og lendir á endanum í vannæringu, það er ekki að fá nægilega mikið prótein og tefjar og það fer í orkuskort.“ Beinin þynnast, kynhvöt hverfur og blæðingar hætta Í kjölfarið léttist fólk svakalega en það er ekki bara fita sem það er að missa. „Mikið af vöðvamassa er að fara, beinþéttni minnkar, vöðvamassi minnkar og fólk verður bara hættilega grannt. Þegar konur verða svona ofboðslega grannar fer ýmis hormónastarfsemi í mikla brenglun,“ segir Ragga og nefnir sem dæmi að kynhvöt lækki mikið, streituástand líkamans hækki svakalega og blæðingar hætti. „Líkaminn hefur bara eitt hlutverk og það er að halda þér á lífi. Ef það eru ekki að koma inn hitaeiningar þá hætta blæðingar því líkaminn finnur að þú sért í engu standi til að fjölga mannkyninu. Þannig hann er alltaf að berjast á móti, líkaminn er alltaf miklu gáfaðri en við og þetta er stöðug barátta.“ Sömuleiðis fer daglega ósjálfráða hreyfing okkar niður sem á íslensku myndi kallast fjörbrennsla. „Sem kemur frá því til dæmis að labba út í búð eða fara út með ruslið, allt þetta minnkar. Líkaminn fer að spara alls staðar þar sem hann getur því það er svo lítið að koma inn.“ Hér má hlusta á Röggu nagla ræða þetta í Bítinu: Hraust eða horuð? Ragga segir langtímaafleiðingarnar sömuleiðis ekki bara líkamlegar heldur líka sálrænar. „Það er til rannsókn sem heitir Minnesota Starvation Experiment og var gerð árið 1950 en hún verður aldrei endurtekin. Þá voru hermenn sveltir niður til að sjá hvað gerist þegar við fáum stríðsfanga til baka og gefum þeim aftur að borða. Þessir hraustu menn voru sveltir niður og mörgum árum síðar á fullorðinsárunum voru þeir enn að fela mat fyrir fjölskyldu sinni til dæmis uppi á háalofti. Þeir voru að skoða uppskriftarbækur lon og don og voru með bullandi átröskun alla ævi jafnvel þótt þeir væru komnir aftur í kjörþyngd.“ Hárlos, svefnleysi, brotnar neglur Ragga ítrekar hve mikilvægt það er að ræða og fræðast. „Það skiptir máli að fræða sérstaklega ungu kynslóðina um að líkamar séu alls konar og það sé ekki eftirsóknarvert útlit að vera svona ofboðslega grannur. Fólk er að glíma við hárlos, svefnleysi, brotnar neglur, það er svo margt sem gerist sem er ekki bara útlitið.“ Hún bætir að lokum við að fullorðna fólkið þurfi líka að vera vart um þetta og bera ábyrgð. „Við þurfum að hugsa hvað er það sem gerir mig hrausta? Er þetta hreysti eða er þetta bara að vera horaður?“ Átröskun er samheiti yfir nokkra geðsjúkdóma sem lýsa sér í miklum röskunum á matarneyslu og eigin sjálfsmynd. Átraskanir hafa oft mjög alvarlegar líkamlegar afleiðingar og geta jafnvel leitt til dauða. Sálrænu áhrifin eru þó ekki síðri, þar sem sjúklingar þjást gjarnan af miklum kvíða, þunglyndi og brenglaðri sjálfsmynd. Á áttavitinn.is er hægt að lesa meira um átraskanir og hvernig hægt er að leita hjálpar. Geðheilbrigði Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira
Átröskun er samheiti yfir nokkra geðsjúkdóma sem lýsa sér í miklum röskunum á matarneyslu og eigin sjálfsmynd. Átraskanir hafa oft mjög alvarlegar líkamlegar afleiðingar og geta jafnvel leitt til dauða. Sálrænu áhrifin eru þó ekki síðri, þar sem sjúklingar þjást gjarnan af miklum kvíða, þunglyndi og brenglaðri sjálfsmynd. Á áttavitinn.is er hægt að lesa meira um átraskanir og hvernig hægt er að leita hjálpar.
Geðheilbrigði Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira